Stelpurnar okkar gista í Króatíu fyrir Slóveníuleikinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. apríl 2018 09:45 Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta. Vísir/Getty
Stelpurnar okkar verða fastagestir á landamærum Króatíu og Slóveníu í þessari viku því þær gista í öðru landi en þær spila. Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er komið saman en hópurinn komst loksins frá Íslandi í gær eftir veðurtengdar tafir. Framundan eru tveir gríðarlega mikilvægir leikir hjá kvennalandsliðinu í undankeppni HM en næstu daga verður leikið gegn Slóveníu og Færeyjum. Ferðalag stelpnanna í gær gekk ágætlega þótt langt væri en þetta kemur fram í frétt á heimsíðu sambandsins. Fyrri viðureignin verður gegn Slóveníu, föstudaginn 6. april. Leikið er í bænum Lendava en þar mættust þjóðirnar einnig árið 2015 í undankeppni EM. Þá hafði íslenska liðið betur, 0-6 en úrslitin urðu önnur þegar þjóðirnar mættust ytra í undankeppni EM árið 2007, þá höfðu heimakonur betur, 2-1. Í fjórum viðureignum þjóðanna hjá A landsliðum kvenna er það eini sigur Slóveníu en Ísland hefur sigrað þrisvar sinnum. Bærinn Lendava, er um tólf þúsund manna bær og hann er nálægt landamærum Slóveníu, Ungverjalands og Króatíu. Íslenska landsliðið gistir ekki í Slóveníu í aðdraganda leiksins heldur gistir liðið á hóteli í Króatíu við góðar aðstæður. Stelpurnar fara því yfir landamærin á leið sinni á æfingar og í leikinn.
HM 2019 í Frakklandi Mest lesið Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Handbolti Eini leikmaðurinn sem gaf boltann aldrei á EM Handbolti Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Íþróttafólk forðast kynlíf af ótta við að falla á lyfjaprófi Sport Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - Haukar 34-41 | Hafnfirðingar tylla sér á toppinn Handbolti Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Handbolti „Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía“ Fótbolti Beint af EM í toppslag: „Andlegi hlutinn sem ég þarf að eiga við“ Handbolti Fékk nóg og strunsaði út úr viðtali Sport Fleiri fréttir Juve hent út úr bikarnum í vel heppnaðri hefndartilraun Alfons lá eftir en fékk svo boltann og skoraði Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti Fjölgar í hópi Íslendinga hjá Inter Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Heillaður af Hollandi og lætur ekki háan verðmiða trufla sig „Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía“ „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði „Don Orri Steinn Óskarsson“ Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Verkfalli Ronaldo lokið Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Böðvar kominn til ÍA frá FH Verjast fótboltabullum með andlitsgreiningu á völlunum Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Reif buxurnar nánast af Yamal sem lét ekki stoppa sig Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Víkingar keyptu Helenu af Val Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Hættir hjá félaginu eftir að börnin hans urðu fyrir kynþáttaníði Stjarnan sækir miðvörð að vestan Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Úkraínumenn æfir vegna orða forseta FIFA: „Minnir á Ólympíuleikana 1936“ Sjá meira