Jóhann Berg: Það er erfitt að tala um þetta núna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. júní 2018 21:55 Jóhann Berg Guðmundsson í leiknum í kvöld. Vísir/Vilhelm
Jóhann Berg Guðmundsson kom aftur inn í íslenska liðið eftir að hafa misst af Nígeríuleiknum vegna meiðsla. „Ég er gríðarlega svekktur með úrslitin. Þó að við höfum tapað þessum leik þá vorum við bara mjög nálægt þessu. Við fengum fullt af færum sem við venjulega klárum en gerðum það ekki í dag. Þetta hefur ekki alveg dottið með okkur í þessu móti,“ sagði Jóhann Berg Guðmundsson eftir 2-1 tap á móti Króatíu í kvöld. „Argentínuleikurinn var fínn en Nígeríuleikurinn spilaðist ekki vel og svo ekki þessi leikur heldur. Það vantaði herslumuninn upp á þetta hjá okkur,“ sagði Jóhann Berg. „Aðalatriðið sem fellir okkur á þessu móti er að við skorum ekki nógu mikið af mörkum. Í dag hefðum við klárlega átt að skora fleiri mörk. Það var skalli í slá hjá okkur og fullt í gangi,“ sagði Jóhann Berg „Við töluðum um það fyrir leikinn að gefa allt í þetta og við gerðum það. Við förum stoltir frá borði héðan en að sama skapi erum gríðarlega nálægt þessu sem er svekkjandi,“ sagði Jóhann Berg „Þetta er búið að falla með okkur undanfarin ár og við erum búnir að spila gríðarlega vel. Það sem hefur dottið með okkur á undanförnum árum er ekki að gera það núna,“ sagði Jóhann Berg og íslenska liðið átti möguleika í lokin. „Eftir að Argentína komst í 2-1 þá hefði okkur dugað 2-1 sigur. Það er gríðarlega svekkjandi,“ sagði Jóhann Berg. „Það er erfitt að tala um þetta núna og ég veit ekki alveg hvað ég á að segja. Við skorum ekki nógu mörg mörk og það er svekkjandi,“ sagði Jóhann Berg.
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Handbolti Íþróttafólk forðast kynlíf af ótta við að falla á lyfjaprófi Sport Eini leikmaðurinn sem gaf boltann aldrei á EM Handbolti Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Handbolti „Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía“ Fótbolti Fékk nóg og strunsaði út úr viðtali Sport Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti Íslenski boltinn „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Íslenski boltinn Fórnuðu Luka Doncic fyrir hann en Davis náði aðeins að spila 31 leik Körfubolti Fleiri fréttir Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti Fjölgar í hópi Íslendinga hjá Inter Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Heillaður af Hollandi og lætur ekki háan verðmiða trufla sig „Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía“ „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði „Don Orri Steinn Óskarsson“ Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Verkfalli Ronaldo lokið Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Böðvar kominn til ÍA frá FH Verjast fótboltabullum með andlitsgreiningu á völlunum Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Reif buxurnar nánast af Yamal sem lét ekki stoppa sig Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Víkingar keyptu Helenu af Val Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Hættir hjá félaginu eftir að börnin hans urðu fyrir kynþáttaníði Stjarnan sækir miðvörð að vestan Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Úkraínumenn æfir vegna orða forseta FIFA: „Minnir á Ólympíuleikana 1936“ Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Forseti FIFA vill fá Rússland inn aftur: „Bannið hefur skapað meiri gremju og hatur“ Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Sjá meira