Ólafía Þórunn úr leik Anton Ingi Leifsson skrifar 27. júlí 2018 18:21 Góð byrjun Ólafíu dugði ekki til. vísir/getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur, er úr leik á Opna skoska meistaramótinu í golfi sem fer fram í Aberdeen um helgina. Ólafía Þórunn gerði sér erfitt fyrir í gær er hún spilaði á sex yfir pari. Valdís Þóra Jónsdóttir var einnig við keppni á Opna skoska en er líka úr leik. Niðurskurðurinn í dag miðaðist við eitt högg yfir pari svo Ólafía þurfti að spila á fimm höggum undir pari ætlaði hún sér að komast í gegnum niðurskurðinn. Hún byrjaði vel og fékk tvo fugla á fyrstu fimm holunum en fékk svo skolla á sjöundu holu. Hún fékk svo annan fugl á níundu holu og var á tveimur undir pari eftir fyrri níu. Fugl á elleftu holunni opnaði allt fyrir Ólafíu sem þurfti því tvo fugla til viðbótar til að komast á fimm undir pari í dag. Par á 12.-15. holu, skollar á sextándu og sautjándu og par á átjándu gerðu það að verkum að Ólafía verður ekki meðal keppanda um helgina. Hún endaði samanlagt á 70 höggum á síðari hringnum í dag, einu undir pari en samanlagt fimm höggum yfir pari. Endaði hún því í 113. sæti.
Golf Mest lesið Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira