Takk fyrir lexíurnar Þórlindur Kjartansson skrifar 20. júlí 2018 07:00 Það hafði einhvern veginn legið í loftinu að Heimir Hallgrímsson myndi ekki halda áfram með landsliðið eftir HM í Rússlandi. Samt var hin endanlega staðfesting á því sem alla grunaði fréttin sem engan langaði til þess að heyra. Tíminn sem við höfum upplifað með landsliðinu á undanförnum árum virðist stundum vera óraunverulegur. Meira eins og skáldsaga en raunveruleiki. Eða eins og sjónvarpsþáttasería sem leiðir okkur stöðugt lengra inn í heim ólíkinda án þess að maður taki eftir því hversu fjarstæðukennd hún er orðin. Og þegar Heimir hætti þá er eins og seríunni sé lokið eða uppáhaldskarakter hafi verið skrifaður út úr sögunni. Maður veit ekki hvað tekur við, hvort það verður betra eða verra—bara að það verður aldrei eins. Þannig hefur ferðin með íslenska landsliðinu verið frá því Heimir kom inn í þjálfarateymið. Hlutir sem virtust fjarlægir og ómögulegir eru orðnir hversdagslegir. Liðið fór úr dýpstu lægðum sögunnar (Ísland var í 131. sæti á heimslista FIFA í mars 2012) og upp í 18. sæti á heimslistanum sex árum síðar.Að standa ekki í stað Það er mikil kúnst að hætta á réttum tíma og sagan geymir kynstrin öll af dæmum um alls konar hetjur á öllum sviðum sem þekkja ekki köllunartíma sinn. Tilkynning Heimis á þessum tímapunkti er sambærileg við það ef íslenskur stjórnmálamaður hefði orðið forsætisráðherra, setið í tæp tvö kjörtímabil, stýrt mikilli uppbyggingu og verið vinsæll og elskaður en ákveðið svo að láta af embætti og hætta afskiptum af stjórnmálum þrátt fyrir yfirgnæfandi stuðning frá kjósendum um að halda áfram. Kanntu annan? Heimir talar um að hann telji að íslenska landsliðið hefði gott af að fá nýja rödd og hann hefur áhyggjur af því að þrátt fyrir ótrúlegan árangur þá kynni þaulseta hans í starfi landsliðsþjálfara fljótlega hætta að vera sniðug hugmynd. Það segir vitaskuld ekkert um Heimi Hallgrímsson, heldur er það einfaldlega staðfesting á því sem annar Hallgrímsson orti: „Það er svo bágt að standa í stað, því mönnunum munar annaðhvort aftur á bak ellegar nokkuð á leið.“ Það sem einkenndi blaðamannafund Heimis á mánudaginn var auðmýkt og þakklæti. Heimir hefði eflaust getað látið halda stjörnum prýdda hátíð sér til heiðurs, kannski á Þingvöllum með Lars Lagerbäck sem ræðumann, og hugsanlega hefðu jafnvel heldur fleiri mætt þangað heldur en Pia Kjærsgaard trekkti að í vikunni. En það hefði auðvitað ekki verið stíll Heimis eða íslenska landsliðsins. Þess í stað hélt hann látlausan fund þar sem hann þakkaði fyrst af öllu fólkinu í kringum liðið sem honum finnst ekki hafa fengið nægilega athygli. Hann þakkaði stuðningsmönnunum. Hann þakkaði meira að segja íslensku fjölmiðlunum og sagði að þeir væru betri og fagmannlegri en það sem hann hafi orðið vitni að annars staðar í heiminum. Að vera eða gera Ég hef auðvitað ekki hugmynd um hvað það var sem raunverulega réði ákvörðun Heimis Hallgrímssonar um að hætta með landsliðið. En ég hef ákveðnar kenningar um hvatirnar. Það er nefnilega þannig með flest störf og embætti að það er hægt að nálgast þau með tvennum ólíkum hætti. Annars vegar getur fólk orðið mjög upptekið af því að vera í háu embætti. Það er flott að fá að vera ráðherra, þingmaður, forstjóri, deildarstjóri, ritstjóri, skipstjóri eða landsliðsþjálfari. Og vitaskuld er ekkert rangt við það að bera virðingu fyrir þeim embættum sem þeim er treyst fyrir. Hins vegar hættir fólki sem fílar embættisheitin umfram allt annað til þess að láta öll störf sín fljótlega fara að snúast um það fyrst og fremst að halda sér í embætti eða krækja sér í æðra embætti. Þeir sem festast í þessum hugsunarhætti eru uppteknastir af því að vera eitthvað. Hin leiðin er að líta á valdamiklar stöður sem tækifæri til þess að gera eitthvað. Þess háttar hugsunarháttur gerir menn eflaust frekar kærulausa um eigin hagsmuni, því þótt þeir telji sig þurfa völdin sem fylgja stöðunni þá hafa þeir yfirleitt ekki neinar grillur um að þeir séu ómissandi og líta ekki svo á að þeir verði stærri en liðið. Það er auðvitað þetta hugarfar sem gert er ráð fyrir þegar einstaklingum eru veitt völd; völdin eru ekki ætluð til þess að leyfa þeim að upphefja sjálfa sig heldur til þess að þeir geti með góðu móti og af trúmennsku sinnt því hlutverki sem þeim er ætlað. Ætli það sé ekki óhætt að gruna Heimi Hallgrímsson um þennan hugsunarhátt frekar en hinn. Til fyrirmyndar Af mörgum ágætum lexíum sem draga má af velgengni íslenska landsliðsins, og því aðdáunarverða hugarfari sem einkennir liðið, þá finnst mér viðskilnaður Heimis vera ein sú verðmætasta. Nálgun hans á starfið hefur sýnt að það er hægt að bera virðingu fyrir andstæðingnum án þess að óttast hann; að hafa botnlaust sjálfstraust án þess að vera hrokafullur; bera sig af glæsimennsku án hégóma—og kannski umfram allt, að hugsa miklu meira um að gera eitthvað heldur en að vera eitthvað. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu HM 2018 í Rússlandi Þórlindur Kjartansson Mest lesið Óútskýrð veikindi skipstjóra um nótt Kristinn Hrafnsson Skoðun Reykjavík töluð niður svo hægt sé að selja eignir hennar Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Einföldum líf barnafjölskyldna Eydís Inga Valsdóttir Skoðun Excel sér ekki barnið sem bíður Anna Kristín Jensdóttir Skoðun Um rekstur Reykjavíkurborgar 2025 Birgir Björn Sigurjónsson Skoðun Halldór 09.05.2026 Halldór Samgöngur fyrir börn Stein Olav Romslo Skoðun Hvers virði er mannúð í Garðabæ? Þuríður Jónsdóttir Skoðun Það er ekki spurning hvort – heldur hvenær Arnar Helgi Lárusson Skoðun Sjálfstæðisflokkur ver ofurþéttingu við Birkimel Karólína Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Framsækin Framsókn Halldór Bachmann skrifar Skoðun Sterk landsbyggð styrkir Ísland allt Ragnar Rögnvaldsson skrifar Skoðun Það er gott að vinna í Kópavogi Karen Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Borg óttans Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar Skoðun Woke – rétttrúnaður og refsivöndur Sigfús Aðalsteinsson skrifar Skoðun Hvers virði er mannúð í Garðabæ? Þuríður Jónsdóttir skrifar Skoðun Mennt er máttur í Garðabæ Almar Guðmundsson,Sigríður Hulda Jónsdóttir skrifar Skoðun Gaman að vera gamall í Garðabæ Hreiðar Þór Jónsson skrifar Skoðun Fjölskylduvænn Garðabær: Innleiðum sumarfrístund Finnur Jónsson skrifar Skoðun Nokkur orð um kosningar Ástríður Jóhannesdóttir skrifar Skoðun Menningar- og listaskrifstofa Reykjavíkurborgar Sverrir Páll Einarsson skrifar Skoðun Mjög mikilvæg fullyrðing Haukur Þorgeirsson skrifar Skoðun Um þagnir, vald og rammana sem við smíðum Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Endar Fáskrúðsfjörður sem brothætt byggð? Arndís R Magnúsdóttir,Gunnar Geir Kristjánsson skrifar Skoðun Hvert stefnir menningin? Elsa María Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Seltjarnarnes þarf uppbyggingu sem skilar árangri Kristinn Ólafsson skrifar Skoðun Ætti sumarstarf frístundaheimila að vera hluti af grunnþjónustu sveitarfélaga? Gísli Ólafsson skrifar Skoðun Bætum þjónustu við fatlað fólk í Garðabæ Ragnheiður Hergeirsdóttir skrifar Skoðun Örlög Kópavogsmódelsins Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Einföldum líf barnafjölskyldna Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Ísland verði hluti af evrópsku sambandsríki Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Samgöngur fyrir börn Stein Olav Romslo skrifar Skoðun Milli vonar og vanrækslu: Hin raunverulega valkreppa í Reykjavík Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erindi Miðflokksins er mikilvægt Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Garðabær: Menning, umhverfi og lífsgæði fyrir okkur öll Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Það er og verður gott að búa í Kópavogi Kristinn Jakobsson skrifar Skoðun Sterk velferð fyrir fólk í Kópavogi Björg Baldursdóttir skrifar Skoðun Íþróttahúsið við Strandgötu - hjarta öflugs íþróttastarfs Erla Björg Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Aldursvæn samfélög – verkefni nýrra sveitarstjórna Halldór S. Guðmundsson skrifar Skoðun Það er ekkert „við og þið“, aðeins eitt samfélag Viðar Marinósson skrifar Sjá meira
Skoðun Endar Fáskrúðsfjörður sem brothætt byggð? Arndís R Magnúsdóttir,Gunnar Geir Kristjánsson skrifar
Skoðun Ætti sumarstarf frístundaheimila að vera hluti af grunnþjónustu sveitarfélaga? Gísli Ólafsson skrifar
Skoðun Milli vonar og vanrækslu: Hin raunverulega valkreppa í Reykjavík Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Íþróttahúsið við Strandgötu - hjarta öflugs íþróttastarfs Erla Björg Hafsteinsdóttir skrifar