Ísland gerði jafntefli við heimsmeistarana: Sjáðu mörkin Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. október 2018 21:15 Birkir í baráttunni við Steven N'Zonzi í kvöld. Getty
Ísland komst yfir gegn heimsmeisturum Frakka í vináttulandsleik þjóðanna í Guingamp í kvöld. Markið skoraði Birkir Bjarnason á 30. mínútu leiksins og var það glæsilegt. Alfreð Finnbogason fór illa með Presnel Kimpembe upp við hornfána, sendi boltann í átt að d-boganum þar sem Birkir mætti á hlaupinu og þrumaði boltanum niðri með jörðu á markið. Boltinn fór undir Hugo Lloris og í netið, Ísland komið yfir gegn heimsmeisturunum. Markið má sjá hér að neðan, það var eina mark fyrri hálfleiksins, Ísland 0-1 yfir í leikhléi. Beina textalýsingu má finna í fréttinni hér fyrir neðan.Staðan í hálfleik var 1-0, Íslandi í vil, að loknum fyrri hálfleik. Strákarnir okkar spiluðu frábærlega og gáfu svo ekkert eftir í upphafi þess síðari. Ísland uppskar svo mark á 58. mínútu er Kári Árnason skoraði með föstum skalla eftir hornspyrnu Gylfa Þórs Sigurðssonar. Markið hans Kára má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.Frakkar náðu svo að jafna metin með tveimur mörkin í lokin. Fyrra markið var sjálfsmark Hólmars Arnar Eyjólfssonar eftir góðan undirbúning Kylian Mbappe, sem skoraði svo sjálfur síðara mark Frakklands eftir að vítaspyrna var dæmt á Kolbein Sigþórsson.Hér má sjá jöfnunarmark Frakklands í kvöld.
Þjóðadeild UEFA Tengdar fréttir Leik lokið: Frakkland - Ísland 2-2 | Frábær frammistaða gegn heimsmeisturunum Íslenska landsliðið í fótbolta mætir heimsmeisturum Frakka í vináttuleik í Guingamp. 11. október 2018 22:15 Mest lesið Arsenal jafnaði rúmlega aldargamalt félagsmet Fótbolti Segir Amorim ekki geta gert kraftaverk Fótbolti Liverpool vann risaslaginn Fótbolti Jafnteflin ríkjandi í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Keflavíkursigur í kaflaskiptum leik Körfubolti Uppgjörið: Njarðvík - Hamar/Þór 88-61 | Auðsóttur sigur Njarðvíkinga Körfubolti Sneypuför danskra til Lundúna Fótbolti Meistararnir lágu á heimavelli Fótbolti Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Handbolti Ísland lenti í algjörum martraðarriðli Fótbolti Fleiri fréttir Segir Amorim ekki geta gert kraftaverk Arsenal jafnaði rúmlega aldargamalt félagsmet Jafnteflin ríkjandi í Meistaradeildinni í kvöld Liverpool vann risaslaginn Meistararnir lágu á heimavelli Sneypuför danskra til Lundúna Natasha semur við nýliða Grindavíkur/Njarðvíkur Slavia Prag engin fyrirstaða fyrir Arsenal Ráku lærlinga sem fögnuðu marki í beinni Falla fleiri gleðitár hjá fjölskyldu Viktors í kvöld? David Beckham aðlaður: „Ég gæti ekki verið stoltari“ Fram líka fljótt að finna nýja ást Viðtal Kjartans við Carrick: „Þolinmæðin minni og dómharkan meiri í hverri viku“ Steini um martraðarriðilinn: „Ekki draumaandstæðingar“ Veggmynd af Alexander-Arnold skemmd: „Bless, rotta“ Ísland lenti í algjörum martraðarriðli Gyökeres ekki með Arsenal í Prag Þjálfaragoðsögn látin taka pokann sinn: „Ég er undrandi“ Þjálfari Alberts rekinn Of kalt til að Ísland geti mætt Noregi og Svíþjóð Sjáðu glæsilegan einleik Ndiayes og jöfnunarmarkið frá Xhaka „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Ronaldo kveðst vera betri en Messi: „Vil ekki vera hógvær“ Fannst Tottenham spila eins og fjórðu deildarlið gegn Chelsea Þjálfari sem mætti Víkingi í fyrra lést í miðjum leik Umboðsmaður hótaði leikmanni með byssu O'Neil tekur ekki við Úlfunum á ný Emilía opnaði markareikninginn gegn Ingibjörgu Fyrsti sigur í hús hjá Genoa Yfirburðir Sunderland dugðu ekki til sigurs Sjá meira
Leik lokið: Frakkland - Ísland 2-2 | Frábær frammistaða gegn heimsmeisturunum Íslenska landsliðið í fótbolta mætir heimsmeisturum Frakka í vináttuleik í Guingamp. 11. október 2018 22:15