Kjúklingaspjót að hætti Tobbu Marinos Stefán Árni Pálsson skrifar 19. desember 2018 18:30 Tobba er frábær í eldhúsinu.
Rithöfundurinn og matgæðingurinn Þorbjörg Marinosdóttir, betur þekkt sem Tobba Marinos, gaf á dögunum út Disney matreiðslubók. Um er að ræða bók með 100 vinsælustu uppskriftirnar úr Disney-matreiðslubókunum. Hér að neðan má sjá ómótstæðilega uppskrift hvernig maður reiðir fram girnileg kjúklingaspjót. Kjúklingaspjót með gómsætri hnetusmjörssósu Fyrir 4800 g kjúklingakjöt, bringur eða lundir1 laukur2 hvítlauksrif½ rautt chillí, fræhreinsað*2 msk kókosolía150 g hnetusmjör100 ml kókosmjólk (úr dós)1 dl appelsínusafi100 g ferskt kóríander2 msk sojasósa1 límóna, safinnGrillpinnar1 dl salthneturSalt Bleytið grillpinnana svo síður kvikni í þeim á grillinu. Ef ekki á að grilla má baka kjúklinginn í ofni á grillstillingu. Saxið laukunn, hvítlauk og chillí mjög smátt og steikið við miðlungs hita upp úr kókosolíu uns laukurinn er tekin að gyllast og eldhúsið ilmar. Setjið öll innihaldsefnin nema kjúklinginn og kóríanderið í pottinn með laukblöndunni og hrærið vel saman. Athugið að sósan þykkist þegar hún kólnar.Skiptið sósunni í tvær skálar. Saxið kóríanderið niður og bætið í skálarnar. Notið annan skammtinn til að bera vel á spjótin en geymið hinn til bera fram með kjúklingnum. Skerið kjúklinginn í bita og þræðið upp á grillpinnana. Berið sósuna á og látið marinerast í að lágmarki 1 klst en að hámark sólahring. Saltið spjótin og grillið kjúklinginn þar til hann er gegn steiktur. Hellið auka sósu yfir spjótin áður en þau eru borin fram og skreytið með kóríander og smátt söxuðum salthnetum.*Athugið að chillíaldin eru mildari eftir því sem þau eru stærri. Farið varlega þegar þau eru skorin því aldinið og fræinn eru mjög sterk og er afar vont að fá chillísafa eða fræ í augu eða munn og getur slíkt valdið miklum sviða.
Grillréttir Kjúklingur Uppskriftir Mest lesið Í leyfi frá skjánum til að styðja eiginmanninn í veikindum Lífið Svona er matseðillinn á Litla-Hrauni Lífið Emilíana Torrini fann ástina Lífið Ágústa Eva slær sér upp með KR-ingi Lífið Segir strákum að hætta í bandarísku efni: „Eins og við séum í málhöltu úthverfi í Nebraska“ Menning Alvöru bíó en hægt brenna Eldarnir Gagnrýni Innviðaráðherra á von á barni Lífið 50+: Að sleppa takinu af krökkunum þegar þau eru flutt að heiman Áskorun Hlaupadrottning eignaðist dreng með hraði Lífið Rooney getur ekki farið til Bretlands af ótta við að verða handtekin Lífið Fleiri fréttir Próteinríkt avókadó-salat að hætti Önnu Eiríks Ungt fólk setur vínbændur í erfiða stöðu Sjá meira
Segir strákum að hætta í bandarísku efni: „Eins og við séum í málhöltu úthverfi í Nebraska“ Menning
Segir strákum að hætta í bandarísku efni: „Eins og við séum í málhöltu úthverfi í Nebraska“ Menning