Iggy Azalea svarar fyrir hvers vegna hún stöðvaði ekki tónleika eftir að dansari fékk flogakast Sylvía Hall skrifar 29. desember 2018 16:37 Azalea var harðlega gagnrýnd á samfélagsmiðlum. Getty/David Becker
Einn dansara rapparans Iggy Azalea fékk flogakast á miðjum tónleikum rapparans í Rio de Janeiro í Brasilíu á fimmtudagskvöld. Atvikið vakti mikla athygli á samfélagsmiðlum þar sem rapparinn stöðvaði ekki tónleikana heldur hélt áfram með lagið sitt Black Widow. Í myndbandi frá tónleikunum sést dansarinn liggja á sviðinu í flogakasti. Azalea heldur áfram með lagið en biður þó um aðstoð bráðatækna á svæðinu á meðan einn dansarana hlúði að þeim sem féll í gólfið. Þegar lagið kláraðist voru tónleikarnir stöðvaðir á meðan dansarinn fékk aðstoð. One of Iggy Azalea’s backup dancers passed out during her performance of 'Black Widow' in Rio de Janeiro, Brazil. pic.twitter.com/R8rEZFBkO8 — Azalean Source (@Azalean_Source) 27 December 2018Azalea svaraði fyrir atvikið á Instagram-síðu sinni þar sem hún fullvissaði aðdáendur um að dansarinn væri heill á húfi. Hún sagði ljósin og hitann á sviðinu hafa orsakað flogakastið en hún sjálf hafi ekki gert sér grein fyrir alvarleika málsins. Iggy Azalea confirms via her Instagram story that her dancer is doing much better. pic.twitter.com/YkTS8cvlIn — Azalean Source (@Azalean_Source) 27 December 2018 „Ég hélt hún hefði fallið og snúið ökkla. Ég veit það hljómar harkalega en þú heldur áfram að syngja þar til tónlistin stöðvast og biður um aðstoð – sem ég gerði,“ skrifaði Azalea og bætti við að hún og hennar teymi hefðu verið mjög eftir sig eftir atvikið og þakklát fyrir að dansarinn væri heill á húfi.
Mest lesið Björk og Yara nýtt par Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Bonnie Tyler er látin Tónlist Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Lífið Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Innipúkunum fjölgar enn Tónlist Fleiri fréttir Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Sjá meira