Ronaldo fyrstur til að verða meistari á Ítalíu, Spáni og Englandi Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 20. apríl 2019 23:00 Ronaldo fagnar í dag vísir/getty
Cristiano Ronaldo varð í dag fyrsti leikmaðurinn til þess að vinna meistaratitla í fótbolta á Englandi, Spáni og Ítalíu þegar Juventus tryggði sér Ítalíumeistaratitilinn. Ronaldo fór til Ítalíu síðasta sumar eftir að hafa unnið spænska meistaratitilinn tvisvar með Real Madrid. Þar áður átti hann þrjá Englandsmeistaratitla í verðlaunaskápnum frá tíma sínum hjá Manchester United. Juventus hefur haft mikla yfirburði á Ítalíu síðustu ár og varð þar engin breyting á í ár, titillinn er búinn að vera á leið til Tórínó síðustu vikur en varð formlega Juventus-manna í dag. Ronaldo varð því fyrsti leikmaðurinn til þess að vinna titla á Englandi, Spáni og Ítalíu. David Beckham á einnig titla úr þremur löndum af þeim fimm sem teljast sem topp fimm í Evrópu. Hann varð meistari með Manchester United og Real Madrid, líkt og Ronaldo, og svo vann hann frönsku deildina með Paris Saint-Germain. Hann náði þó ekki að bæta Ítalíu í safnið, AC Milan endaði í þriðja sæti þegar Beckham var þar. Zlatan Ibrahimovic á Ítalíumeistaratitil með Inter Milan og Spánarmeistaratitil með Barcelona. Hann var þó ekki á réttum tíma með Manchester United því ólíkt hinum tveimur náði hann ekki í titil með rauðu djöflunum. Hann á þó titil með PSG og er því einnig með þrjá stóra meistaratitla í Evrópu. Jose Mourinho á hins vegar þrennu frá Ítalíu, Spáni og Englandi, en sem þjálfari ekki leikmaður. Hann stýrði Chelsea til sigurs á Englandi, Inter á Ítalíu og Real Madrid á Spáni.
Ítalski boltinn Mest lesið Hafnaði 34 milljónum: „Vil ekki styðja kerfi sem býr til fíkn og eyðileggur líf“ Sport Segir starfið í húfi hjá Alfreð Handbolti Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Enski boltinn Gray hetja Tottenham Enski boltinn Littler sjóðheitur en sá fjórði besti varð fyrir áfalli Sport Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Enski boltinn Van Gerwen: „Alveg sama um Luke og Luke“ Sport Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Fótbolti Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Enski boltinn Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Fótbolti Fleiri fréttir Jöfnuðu 128 ára gamalt met Mahrez tryggði Alsíringum sigur Gray hetja Tottenham Højlund með tvö og Napoli í annað sætið Calvert-Lewin skoraði í sjötta leiknum í röð Andy Carroll mætir fyrir dóm eftir að hafa verið handtekinn Villa kvartar til Chelsea vegna flösku sem flaug á bekkinn Gömlu Chelsea-mennirnir skutu Milan á toppinn Leið Víkings að titlinum rifjuð upp í kvöld Sjáðu magnaða vörslu Raya: „Þetta var stórkostlegt“ Sjáðu fyrsta mark Wirtz, laglega sjálfsmarkið og Watkins stúta Chelsea Liverpool-skotmarkið ekki á förum í janúar Skoraði og fékk gult fyrir að benda Juventus stigi frá toppnum Aldrei spilað þarna en sagði strax já „Viss um að ég myndi skora einn daginn“ Mané tryggði Senegal stig Watkins hélt ótrúlegri sigurgöngu Villa áfram Schade og Jiménez sendu Brentford og Fulham í efri hlutann Arsenal aftur á toppinn Fyrsta mark Wirtz í þriðja sigrinum í röð Þjálfari Þóris sá rautt í tapi fyrir Fabregas Salah sakaður um dýfu: „Getum ekki keppt við Egypta og dómarana“ Arnar Þór ráðinn til FIFA: „Himinlifandi að hafa fengið þetta starf“ Tap hjá Tómasi í grannaslagnum og toppbaráttan harðnar Cherki aðalmaðurinn í sigri City Úlfarnir heiðruðu minningu Jota Enn tapa Albert og félagar Andri Lucas frá í mánuð Írar ætli að fylgja eftir tillögu Heimis Sjá meira