Sendiráð í Úganda lýsa yfir áhyggjum af mál- og fundafrelsi í landinu Heimsljós kynnir 7. maí 2019 12:15 Ljósmynd frá Kampala. gunnisal
Sendiráð Íslands í Úganda og fulltrúar fjölmargra annarra þjóða lýstu, á alþjóðlegum degi fjölmiðlafrelsis í síðustu viku, yfir áhyggjum vegna aðgerða stjórnvalda í Úganda gegn mál- og fundafrelsi í landinu. Í yfirlýsingu eru nýlegar aðgerðir fjölmiðlanefndar Úganda gegn fjölmiðlum gagnrýndar og ennfremur misnotknun á lögregluvaldi gegn mótmælendum og stjórnarandstöðumönnum. „Tjáningar- og málfrelsi eru stjórnarskrárvarin í Úganda, en fjölmörg lagaákvæði, þar með talin refsilöggjöf, er í andstöðu við þessi réttindi,“ segir Unnur Orradóttir Ramette sendiherra Íslands í Kampala. „Túlkun og framkvæmd gildandi laga ganga einnig gegn þessum réttindum. Frumvarp til lagabreytinga sem takmarkar mjög heimildir listamanna til að skipuleggja viðburði er augljóslega beitt gegn forsetaframbjóðandanum Bobi Wine, en að hans sögn hefur lögregla nú þegar stöðvað 124 tónleika hans frá í október 2017.“ Forsetakosningar fara fram í Úganda snemma árs 2021. Skoðanakannanir sýna að í fyrsta sinn frá því Yoweri K. Museveni tók við völdum árið 1986, njóti hann stuðnings innan við 50% þjóðarinnar. Þingmaðurinn og tónlistarmaðurinn Bobi Wine, 37 ára, er leiðtogi pólitísku hreyfingarinnar „People Power Movement" og yfirlýstur forsetaframbjóðandi. Hann heitir réttu nafni Robert Kyagulanyi Ssentamou en er þekktari undir listamannsnafni sínu. Hann var handtekinn í þriðja sinn á skömmum tíma í lok aprílmánaðar fyrir að hafa hvatt til mótmæla í júlí 2018 gegn skattlagningu á samfélagsmiðla en var leystur úr haldi gegn tryggingu og þarf að mæta aftur fyrir rétt síðar í mánuðinum. Aðrir stjórnarandstöðuleiðtogar, sérstaklega Kifefe-Kizza Besigye, núverandi og fyrrverandi forsetaframbjóðandi, hafa einnig orðið fyrir barðinu á lögreglu og fjölmiðlanefnd. Unnur segir augljóst af fréttaflutningi að fjölmiðlar og samfélagsmiðlar séu beittir þrýstingi því lítið sé um fréttaflutning af ákveðnum viðburðum undanfarna daga, sérstaklega mótmælum almennings og aðgerðum lögreglu gegn stjórnarandstæðingum. Undanfarna daga hafi fjölmiðlanefnd eða lögregla lokað á útsendingar útvarpsstöðva og svipt tugi blaðamanna og útvarps- og sjónvarpsstöðva leyfi tímabundið. „Það má búast við að allar tilraunir til að stöðva stjórnarandstöðuleiðtogana í Úganda, kalli á hörð viðbrögð almennings, sérstaklega hjá hinni fjölmennu ungu kynslóð Úganda, sem er stærsti stuðningshópur Bobi Wines og kynntist honum fyrst í gegnum tónlist hans og textum gegn félagslegu óréttlæti og harðræði. Þótt nánast ekkert megi lesa um þessar mundir um mótmæli almennings í Kampala, var þeirra þó greinilega vart í síðustu viku í næsta umhverfi sendiráðsins. Það er þó ekki ástæða til að gefa út neinar viðvaranir,“ segir Unnur. Að yfirlýsingunni standa Bandaríkin, aðildarríki ESB í Kampala og sendinefnd ESB, Noregur, S-Kórea, Japan og Ísland. Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Þróunarsamvinna Mest lesið Ekki sé hægt að kaupa fólk út eða rífa hús sem séu byggð samkvæmt leyfum Innlent Allt of mikið af svipuðum íbúðum á markaði skapi misræmi Innlent Bíða með að selja íbúðir frekar en að lækka verðið Innlent Hafnaði hermönnum Trump: „Fullveldið er ekki til sölu“ Erlent Fjórtán börn handtekin eftir að drengur lést í eldsvoða Erlent Óboðlegt að vista hælisleitendur sem eigi að vísa úr landi í fangelsum Innlent „Þetta hefur verið sorgleg þróun“ Innlent Segist hafa skipað hæfasta fólkið þvert á athugasemdir verkfræðinga Innlent Afstýrðu sprengjutilræði á tveggja milljóna manna tónleikum Lady Gaga Erlent „Maður skyldi ætla að það þurfi tiltekið siðferði til að starfa í lögreglunni“ Innlent