Laaksonen nýr forstjóri Samskipa í Evrópu Andri Eysteinsson skrifar 12. júlí 2019 08:05 Kari-Pekka Laaksonen tekur við starfi um næstu mánaðamót. Samskip
Finninn Kari-Pekka Laaksonen hefur verið ráðinn forstjóri samsteypu Samskipa í Evrópu. Þetta kemur fram í tilkynningu Samskipa. Kari-Pekka mun hefja störf hjá fyrirtækinu 1. ágúst næstkomandi og verður starfsstöð hans í Rotterdam í Hollandi. Laaksonen hefur undanfarin ár leitt finnska fyrirtækið Containerships og býr því yfir reynslu úr skipageiranum en undir stjórn hans hefur Containerships vaxið og dafnað. „Ferilskrá mín síðustu 20 árin sýnir reynslu úr geiranum með mismunandi skipaflutningafyrirtækjum en það endurspeglar áhuga minn á þörfum viðskiptavinanna, segir Laaksonen. Skipulagsbreytingar hérlendis verða ekki miklar en Birkir Hólm Guðnason verður enn forstjóri Samskipa á Íslandi og mun starfsemin hér á landi njóta frekari stuðnings frá höfuðstöðvunum í Rotterdam. Ólafur Ólafsson, einn eiganda Samskipa, segist hæst ánægður með ráðninguna á Laaksonen. „Ég þekki Kari-Pekka bæði faglega og persónulega til margra ára og hef séð hve vel honum hefur vegnað. Ég er því afar ánægður að hann sé að koma yfir til okkar hjá Samskipum,“ segir Ólafur. Kari-Pekka Laaksonen mun fara fyrir sex manna framkvæmdastjórn fyrirtækisins en Ásbjörn Gíslason, sem gegnt hefur starfi forstjóra Samskip Logistics mun einnig sitja þar og tekur við hlutverki aðstoðarforstjóra samsteypunnar við hlið Kari-Pekka.
Vistaskipti Mest lesið Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp Viðskipti erlent Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Viðskipti innlent Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Viðskipti innlent Icelandair grunar flugmenn um græsku Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Sjá meira