Hjörtur og félagar upp í 3. sætið eftir endurkomusigur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. júlí 2019 18:15 Hjörtur og félagar eru ósigraðir í dönsku úrvalsdeildinni. vísir/getty
Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn þegar Brøndby vann 3-2 sigur á OB í dönsku úrvalsdeildinni í dag. Brøndby lenti 1-2 undir um miðbik seinni hálfleiks en pólski framherjinn Kamil Wilczek tryggði liðinu sigur með tveimur mörkum undir lokin. Með sigrinum komst Brøndby upp í 3. sæti deildarinnar. Liðið hefur unnið tvo af fyrstu þremur leikjum sínum á tímabilinu og gert eitt jafntefli. Guðmundur Þórarinsson var í byrjunarliði Norrköping og lék allan leikinn þegar liðið gerði markalaust jafntefli við IFK Göteborg á útivelli. Norrköping er í 7. sæti deildarinnar með 28 stig eftir 18 leiki. Í sænsku kvennadeildinni tapaði Djurgården fyrir Eskilstuna United, 0-3. Ingibjörg Sigurðardóttir og Guðrún Arnardóttir léku allan tímann í vörn Djurgården. Guðbjörg Gunnarsdóttir leikur ekki með liðinu næstu mánuðina þar sem hún er barnshafandi. Djurgården er í 9. sæti deildarinnar með níu stig, fimm stigum frá fallsæti. Ålesund vann sinn þriðja leik í röð í norsku B-deildinni þegar liðið bar sigurorð af Nest-Sotra, 2-0, á heimavelli. Daníel Leó Grétarsson, Davíð Kristján Ólafsson og Aron Elís Þrándarson léku allan leikinn fyrir Ålesund sem er með fimm stiga forskot á toppi deildarinnar. Viðar Ari Jónsson lék allan leikinn fyrir Sandefjord sem laut í lægra haldi fyrir Ham-Kam, 1-0, á útivelli. Sandefjord er í 2. sæti deildarinnar.
Danski boltinn Norski boltinn Sænski boltinn Mest lesið Ísland lenti í algjörum martraðarriðli Fótbolti Þjálfari sem mætti Víkingi í fyrra lést í miðjum leik Fótbolti Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Handbolti Þjálfaragoðsögn látin taka pokann sinn: „Ég er undrandi“ Fótbolti Falla fleiri gleðitár hjá fjölskyldu Viktors í kvöld? Fótbolti Björgvin Páll hafi þaggað niður í efasemdaröddum Handbolti „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Íslenski boltinn Of kalt til að Ísland geti mætt Noregi og Svíþjóð Fótbolti Veggmynd af Alexander-Arnold skemmd: „Bless, rotta“ Fótbolti David Beckham aðlaður: „Ég gæti ekki verið stoltari“ Enski boltinn Fleiri fréttir Slavia Prag - Arsenal | Geta tékkað sig inn á toppinn Ráku lærlinga sem fögnuðu marki í beinni Falla fleiri gleðitár hjá fjölskyldu Viktors í kvöld? David Beckham aðlaður: „Ég gæti ekki verið stoltari“ Fram líka fljótt að finna nýja ást Viðtal Kjartans við Carrick: „Þolinmæðin minni og dómharkan meiri í hverri viku“ Steini um martraðarriðilinn: „Ekki draumaandstæðingar“ Veggmynd af Alexander-Arnold skemmd: „Bless, rotta“ Ísland lenti í algjörum martraðarriðli Gyökeres ekki með Arsenal í Prag Þjálfaragoðsögn látin taka pokann sinn: „Ég er undrandi“ Þjálfari Alberts rekinn Of kalt til að Ísland geti mætt Noregi og Svíþjóð Sjáðu glæsilegan einleik Ndiayes og jöfnunarmarkið frá Xhaka „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Ronaldo kveðst vera betri en Messi: „Vil ekki vera hógvær“ Fannst Tottenham spila eins og fjórðu deildarlið gegn Chelsea Þjálfari sem mætti Víkingi í fyrra lést í miðjum leik Umboðsmaður hótaði leikmanni með byssu O'Neil tekur ekki við Úlfunum á ný Emilía opnaði markareikninginn gegn Ingibjörgu Fyrsti sigur í hús hjá Genoa Yfirburðir Sunderland dugðu ekki til sigurs Segir Wirtz enn vera að venjast leikjaálaginu Spence og van de Ven báðust afsökunar Telja United mun líklegra til að enda í sjöunda en öðru sæti Rekinn eftir aðeins fimm mánuði í starfi Leitin heldur áfram og Lúðvík leysir af Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta Ósammála um Gyökeres: „Hefðirðu verið ánægður með fjögur mörk?“ Sjá meira