Glódís og stöllur hennar juku forskotið á toppnum | Góður sigur Kristianstad Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 14. ágúst 2019 19:05 Glódís lék allan leikinn í vörn Rosengård. vísir/getty
Glódís Perla Viggósdóttir var á sínum stað í vörn Rosengård sem vann 3-0 sigur á Limhamm Bunkeflo í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Rosengård er með fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar en liðið hefur unnið níu af fyrstu 13 leikjum sínum á tímabilinu. Andrea Thorisson lék síðustu 13 mínúturnar fyrir Limhamm Bunkeflo sem er í ellefta og næstneðsta sæti deildarinnar. Íslendingaliðið Kristianstad bar sigurorð af Vaxjo, 3-1. Sif Atladóttir lék allan leikinn í vörn Kristianstad en Svava Rós Guðmundsdóttir var á varamannabekknum. Elísabet Gunnarsdóttir er þjálfari Kristianstad sem er í 6. sæti. Það gengur hvorki né rekur hjá Djurgården sem tapaði fyrir Eskilstuna United, 4-2. Djurgården hefur tapað fimm leikjum í röð og er í 10. sæti deildarinnar. Ingibjörg Sigurðardóttir lék allan leikinn fyrir Djurgården en Guðrún Arnardóttir var á bekknum. Anna Rakel Pétursdóttir kom inn á sem varamaður á 35. mínútu þegar Linköping laut í lægra haldi fyrir Kungsbacka, 2-1. Þetta var fyrsti sigur Kungsbacka í deildinni. Linköpings er í 5. sæti. Matthías Vilhjálmsson lék allan leikinn fyrir Vålerenga sem gerði 1-1 jafntefli við Stabæk í norsku úrvalsdeildinni. Vålerenga, sem hefur aðeins fengið tvö stig af níu mögulegum í síðustu þremur leikjum, er í 6. sæti deildarinnar. Kjartan Henry Finnbogason var í byrjunarliði Velje sem laut í lægra haldi fyrir Frederica, 0-1, í dönsku B-deildinni. Velje er í 7. sæti deildarinnar með fjögur stig eftir fjóra leiki.
Danski boltinn Norski boltinn Sænski boltinn Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Enski boltinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Íslenski boltinn Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Fiorentina - Inter | Albert tekur á móti toppliðinu í síðasta leik fyrir sprautumeðferð Fótbolti Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Uppgjörið KR - Njarðvík 89-70 | KR vann toppslaginn gegn Njarðvík í Vesturbænum Körfubolti Fleiri fréttir Arteta sér ekkert eftir valinu: „Hver sem er getur gert mistök“ Real Madrid - Atlético Madrid | Nágrannaslagur í höfuðborginni Fiorentina - Inter | Albert tekur á móti toppliðinu í síðasta leik fyrir sprautumeðferð 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Hákon fagnaði dýrmætum sigri í Marseille O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Viktor fékk víti en skelfileg martröð FCK heldur áfram Sandra allt í öllu í sigurleik Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Kolbeinn lagði upp í sigri Börsungar styrkja stöðuna á toppnum Daníel Leó meiddist | Landsleikirnir í hættu? Brobbey braut hjörtu svarthvítra Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Báðir þurfa bikar „Það var erfitt að anda“ Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Löng bið Leeds eftir marki lengist Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Sjáðu sjóðheitan Kristian halda áfram að skora „Ótrúlegt að við höfum ekki skorað fleiri mörk“ „Færir liðinu vonandi sjálfstraust“ Hearts vann án Tómasar Fulham blandar sér í Meistaradeildarbaráttuna Sjá meira