Móttaka fyrir flóttamenn í Mosfellsbæ Heimsljós kynnir 7. nóvember 2019 10:00 Frá móttökunni í gær. Stjórnarráðið
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, var í gær viðstaddur formlega móttöku flóttafólks frá Kenía í Mosfellsbæ. Fólkið er hluti af 25 manna hópi sem kom til landsins 12. september síðastliðinn. Hluti hópsins settist að í Garðabæ og á Seltjarnarnesi og hluti í Mosfellsbæ. Þetta er í annað sinn sem Mosfellsbær tekur á móti kvótaflóttafólki. „Ég vona að þið séuð hægt og rólega að venjast lífinu hér í Mosfellsbæ, þó ég viti að það taki talsvert lengri tíma að aðlagast að fullu,“ sagði Ásmundur Einar við móttökuna. „Það krefst hugrekkis að flytja til lands sem sum ykkar höfðuð jafnvel ekki heyrt um. Það er því vonandi gott til þess að vita að vel hefur gengið hjá hópnum sem settist hér að í fyrra og vona ég að hið sama muni gilda um ykkur. Ég vil jafnframt nota tækifærið og þakka Mosfellsbæ og örðum sem að verkefninu koma fyrir sitt góða framlag.“ Hinn 12. október 2018 samþykkti ríkisstjórnin að tekið yrði á móti allt að 75 flóttamönnum árið 2019. Fyrri hópurinn kom til landsins í apríl en þá var tekið á móti 50 einstaklingum frá Sýrlandi og eru þeir nú búsettir á Hvammstanga, á Blönduósi og í Árborg. Ekki hefur verið tekið á móti fleiri flóttafólk frá árinu 1999 þegar tekið var á móti 75 einstaklingum frá Kosovo.Þessi grein er hluti af samstarfi Vísis og utanríkisráðuneytisins um miðlun frétta af þróunarsamstarfi Íslands um allan heim. Fréttin birtist fyrst í Heimsljósi, upplýsingaveitu utanríkisráðuneytisins um þróunar- og mannúðarmál.
Mosfellsbær Þróunarsamvinna Mest lesið Þorvaldur gagnrýndur fyrir órökstudda spá um eldgos Innlent Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Innlent Tugir drukknuðu og margra enn saknað Erlent Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Erlent Hvalur skaut upp höfði upp við bryggjuna: „Þetta var alveg magnað“ Innlent Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Erlent Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Erlent „Allt uppselt“ af símum eftir rigninguna Innlent Fimm líkamsárásir í Vestmannaeyjum Innlent Slysið á sama stað og við sömu aðstæður og fyrri banaslys í fjörunni Innlent