Eins og falleg íslensk vetrarbirta Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar 29. nóvember 2019 08:30 Kristján Þórður Hrafnsson hefur lengi verið heillaður af kveðskap Jóns Helgasonar. fréttablaðið/eyþór
Jónsvaka Helgasonar verður haldin í Veröld – húsi Vigdísar nú á sunnudag, 1. desember, kl. 14.00. Tilefnið er ný útgáfa af ljóðasafni hans og að 120 ár eru liðin frá fæðingu þessa merka skálds og fræðimanns. Kristján Þórður Hrafnsson, Bergsveinn Birgisson, Sigríður Halldórsdóttir og Þórunn Björnsdóttir munu ræða um Jón, skáldskap hans og fræði. Hljómsveitin Hundur í óskilum leikur lög við texta Jóns. Kristján Þórður mun tala um braglist Jóns. „Hann er að mínu viti einn mesti bragsnillingur íslenskrar tungu. Það sem mér finnst sérstaklega heillandi er hvernig hann notar þríliðinn, það er að segja braglið sem er þrjú atkvæði og yrkir þannig langar ljóðlínur eins og í kvæðinu Í Árnasafni. Mér finnst líka mjög hrífandi hvernig hann notar þríliðinn í sonnettum, bæði frumortum sonnettum og líka sonnettum sem hann þýðir. Þá lætur hann stundum skiptast á í sömu ljóðlínunni tvíliði og þríliði. Bragsnilld Jóns gefur kvæðum hans kliðmýkt og áhrifamikinn hljóm. Hið kjarnmikla orðfæri Jóns er líka afar heillandi. Hugsunin er meitluð og skörp og myndmálið mjög skýrt. Mér finnst ljóð Jóns stundum vera eins og falleg íslensk vetrarbirta.“Hryggð yfir hverfulleika Spurður um inntak kvæðanna segir Kristján Þórður: „Það má segja að sú kennd sem ríkir í ljóðum hans sé ákveðin hryggð yfir hverfulleika lífsins og forgengileika alls, en maður skynjar samt mjög sterklega ást hans á tungumálinu, skáldskapnum og náttúrunni. Mér f innst svo fallegt hvernig hann talar um í kvæðinu Í Árnasafni að fýsnin til fróðleiks og skrifta geti lyft huganum úr dustinu. Honum er líka mjög hugleikið hið innra líf manneskjunnar, það sem lifir í huga manneskjunnar þótt margt breytist. Þó að mjög víða í kvæðum hans sé að f inna hugsanir um fánýti og fallvaltleika þá er skáldskapur hans líka stundum mjög innilegur, sérstaklega þegar hann yrkir um minningar, bernskuna og liðna tíð. Svo má ekki gleyma því að þótt Jón sé alvarlegt skáld þá eru mörg kvæði hans létt og skemmtileg. Hann er mikill húmoristi, eins og sést til dæmis í kvæðinu Á afmæli kattarins sem ég held alveg sérstaklega upp á. Svo verður að geta þess að Jón var alveg frábær ljóðaþýðandi og þar nýtur sín smekkvísi hans og vald yfir tungumálinu og bragnum.“Dýrgripur fyrir alla Kristján Þórður segist hafa heillast af kveðskap Jóns um leið og hann eignaðist kvæðasafn hans frá árinu 1986 skömmu eftir útgáfu þess. „Ég hef verið hugfanginn af skáldskap hans síðan. Þessi bók hefur fylgt mér mjög lengi og ég les í henni reglulega. Mér finnst alveg sérstakt gleðiefni að nú sé búið að endurútgefa kvæðasafn hans þannig að skáldskapur hans, bæði frumort ljóð og þýðingar, sé aðgengilegur nýjum lesendum. Kvæðasafn Jóns Helgasonar er dýrgripur fyrir alla þá sem unna íslenskri tungu og skáldskap.“
Birtist í Fréttablaðinu Bókmenntir Mest lesið Ætlaði aldrei að enda í herskóla í Bandaríkjunum Lífið „Ég er búin að fæða þrjú börn en þetta er versta sem ég hef upplifað“ Lífið Þakka aðdáendum fyrir að hafa fjármagnað nýja húsið Lífið „Ye mátti þola versnandi andlega heilsu vegna gjörða þinna“ Lífið Með höfuðið rétt skrúfað á og gleyma aldrei hjálminum Lífið Verðmiðinn hækkar á höll Antons Lífið Batinn á vefjagigt kom úr óvæntri átt Lífið samstarf Fréttatía vikunnar: Rafmagnsleysi, njósnir og SFS Lífið BAUHAUS býður þér í glæsilega afmælisveislu! Lífið samstarf Forstjórabaninn fær söngleik á fjalirnar Lífið Fleiri fréttir „Heyri allt í einu hversu steikt þetta er orðið“ þegar hún útskýrir veikindin fyrir vinum Íslendingar vekja athygli í menningarlífi Kaupmannahafnar Fimmtíu ára ljósmyndaveisla á sýningu GVA Arngunnur Ýr er bæjarlistamaður Hafnarfjarðar 2025 Lóa Hlín, Rán, Mars og Elías Rúni fá Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar Hugmyndin kviknaði í New York þegar eldgos hófst heima Egill Heiðar Anton Pálsson tekur við sem leikhússtjóri Elti konuna sína yfir hálfan hnöttinn Fjöldi fólks á opnun fölsuðu verkanna Mario Vargas Llosa fallinn frá Alls 38 milljónum króna úthlutað úr Myndlistarsjóði Sá stórt tækifæri í fjárfestingarhlið listarinnar Klukkur og kaffibollar í partýi á Prikinu „Mikilvægt að gera hluti sem hann yrði stoltur af“ Fordæmd ást kúrekanna á fjallinu Sjá meira