Þriðji sigur ÍBV sem færist nær úrslitakeppnisbaráttu Anton Ingi Leifsson skrifar 8. desember 2019 16:12 Ester skoraði sjö mörk í dag. vísir/ernir
ÍBV lyfti sér lengur frá fallsætinu í Olís-deild kvenna og nær úrslitakeppni er liðið vann fjögurra marka sigur á HK, 33-29, er liðin mættust í frestuðum leik í dag. Leikurinn átti að fara fram í gær en leikmenn HK komust ekki til Eyja og því var leikurinn spilaður í dag. Liðin héldust hönd í hönd fyrstu tíu mínúturnar en þá skildu leiðir. ÍBV náði mest fimm marka forystu í fyrri hálfleik en var þó bara einu marki yfir í hálfleik, 14-13. ÍBV var svo með forystuna fyrstu fimmtán mínúturnar í síðari hálfleik en HK náði að jafna metin er stundarfjórðungur voru eftir. Eyjastúlkur voru hins vegar sterkari á síðasta stundarfjórðungnum og höfðu sigurinn mikilvæga að lokum. Ester Óskarsdóttir, Sunna Jónsdóttir og Ásta Björt Júlíusdóttir gerðu allar sjö mörk fyrir ÍBV en Darija Zecevic átti góðan leik í markinu með 35% markvörslu. Jóhanna Margrét Sigurðardóttir var í sérflokki í liði HK en hún skoraði níu mörk. Ágústa Huld Gunnarsdóttir og Sigríður Hauksdóttir gerðu fimm hvor en Sara Sif Helgadóttir náði sér ekki á strik í markinu. ÍBV er í næst neðsta sætinu með sjö stig en HK er í 4. sætinu með tíu stig.
Olís-deild kvenna Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Íslenski boltinn Brasilísk fótboltagoðsögn lést rétt fyrir HM Fótbolti Lærissveinar Heimis missa heimaleik á hlutlausan völl Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Sjá meira