Gæti orðið vart við eldingar eða hagl á Vestur- og Norðurlandi Atli Ísleifsson skrifar 23. júní 2020 07:05 Talsverð rigning á Suðausturlandi í kvöld og nótt, en annarsstaðar dregur úr úrkomu. Veðurstofan
Útlit er fyrir að loftið yfir landinu eftir hádegi verði óstöðugt þar sem myndast geta háreist skúraský. Mögulega verður vart við eldingar eða hagl á stöku stað á Vestur- og Norðurlandi. Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar. Áfram verði svo óstöðugt loft á morgun með dembum víðar um land og mögulega hagl og eldingar á stöku stað. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að í dag megi búast við fremur hægri suðlægri átt og stöku skúrum, en dálítil rigningu norðaustantil fram eftir morgni. „Eftir hádegi gengur í suðaustan 8-13 m/s, þykknar upp og fer að rigna um sunnanvert landið. Heldur hægari vindur vestan- og norðanlands og skúrir, sumar þeirra hellidembur og má jafnvel búast við hagléli og eldingum á stöku stað. Hiti víða 10 til 16 stig að deginum. Talsverð rigning á Suðausturlandi í kvöld og nótt, en annarsstaðar dregur úr úrkomu.“ Veðurhorfur næstu daga Á miðvikudag: Breytileg átt 3-8 m/s, en suðaustan 8-13 á austanverðu landinu. Talsverð rigning suðaustanlands, en skúrir í öðrum landshlutum, sums staðar hellidembur. Úrkomulítið um kvöldið. Hiti 10 til 17 stig. Á fimmtudag: Suðvestlæg eða breytileg átt 3-10 og dálitlar skúrir, en bjartviðri austantil. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast á Austurlandi. Á föstudag: Austlæg átt, víða 5-10 m/s. Dálítil rigning um landið norðaustanvert, en stöku súrir í öðrum lands hlutum. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast suðvestanlands. Á laugardag og sunnudag: Allhvöss eða hvöss austan- og norðaustanátt. Rigning og hiti 8 til 13 stig, en úrkomulítið um landið suðvestanvert og hiti að 18 stigum. Á mánudag: Norðaustan átt og rigning með köflum, en þurrt sunnan- og vestanlands. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast á Suðurlandi.
Veður Mest lesið Deildar meiningar um tölvupóst sem óvart var sendur á alla í nefndinni Innlent Reglulega tilkynnt um þjófnað á vatni Innlent Takmarka fjölda nemenda utan EES Innlent Nafn unga mannsins sem lést á Vesturlandsvegi Innlent Svona svara stjórnvöld ákalli um bundið slitlag á sveitavegi Innlent Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Innlent Telja brotið gegn réttindum barna og íhuga málaferli Innlent Sér eftir að hafa ekki sagt Eli oftar hve heitt hann elskaði hann Erlent „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ Innlent Ríkisstjórnin sendi leiðréttingu inn í beina útsendingu Innlent Fleiri fréttir Djúp lægð grefur um sig Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Tíðindalítið veður en bætir í vind í kvöld Dálítil snjókoma norðantil en þurrt sunnan heiða Lægðin á undanhaldi Víða allhvass vindur og rigning Siggi stormur spáir rauðum jólum Hellidemba í kortunum og líkur á þrumum Stormur gengur yfir sunnan- og vestanvert landið Austan stormur og gular viðvaranir á morgun Hvassviðri eða stormur og gular viðvaranir Bæta við gulri viðvörun á Vestfjörðum og miðhálendi Hvasst sunnantil og víða rigning eða slydda Hvassviðri syðst á landinu Smá rigning eða slydda víða Hiti gæti náð upp undir 10 gráður Rigning eða slydda sunnan- og vestanlands Bjart sunnan- og vestanlands en él norðan- og austantil Allhvasst syðst en hægari vindur annars staðar Bjartviðri suðvestantil en hvasst suðaustanlands Blæs hressilega af austri Stormur í kortunum Snjódýptin geti náð fjörutíu sentimetrum Gul viðvörun vegna snjókomu Snjókoma í kortunum Kuldinn bítur í kinnar landsmanna Slær í storm suðaustantil en höfuðborgarsvæðið í skjóli Allvíða él eða skúrir og flughált víða um land Hlýnar í veðri og gæti orðið flughált Vara við flughálku í fyrramálið Sjá meira