Leikmaður Lazio fékk rautt fyrir að bíta mótherja | Myndband Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. júlí 2020 12:00 Bitvargurinn Patric fær að líta rauða spjaldið. getty/Marco Rosi
Patric, varnarmaður Lazio, var rekinn af velli fyrir að bíta mótherja í uppbótartíma í leik liðsins gegn Lecce í ítölsku úrvalsdeildinni í gær. Lazio tapaði leiknum, 2-1, og Patric tók reiði sína út á Giulio Donati, varnarmanni Lecce. Þegar Felipe Caicedo, framherji Lazio, og Fabio Lucioni, varnarmaður Lecce, lentu í orðaskaki í uppbótartíma reyndi Donati að stilla til friðar. Patric kom þá aftan að honum og sökkti tönnunum í öxlina á honum. Atvikið má sjá hér fyrir neðan. Klippa: Beit mótherja Patric hafði ekkert upp úr krafsinu nema rautt spjald og væntanlega langt bann. Óhætt er að segja að þetta hafi ekki verið hans dagur en hann fékk á sig vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks fyrir hendi. Marco Mancuso, fyrirliði Lecce, skaut yfir úr vítinu. Strax á 3. mínútu var mark dæmt af Mancuso eftir inngrip myndbandsdómgæslu. Tveimur mínútum síðar kom Caicedo Lazio yfir. Khouma Babacar jafnaði á 30. mínútu og staðan var 1-1 í hálfleik. Í upphafi seinni hálfleiks skoraði Fabio Lucioni sigurmark Lecce með skalla eftir hornspyrnu. Með sigrinum komst liðið upp úr fallsæti. Lazio hefur fatast flugið í toppbaráttunni að undanförnu og er sjö stigum á eftir toppliði Juventus. Lazio hefur tapað þremur af fimm leikjum sínum eftir að keppni hófst á ný eftir kórónuveirufaraldurinn. Mörkin og helstu atvik úr leik Lecce og Lazio má sjá hér fyrir neðan. Klippa: Lazio að missa flugið
Ítalski boltinn Mest lesið „Ég trúði ekki að þetta væri að gerast“ Sport Hefur eignast barn en þarf samt að sanna að hún sé kona Sport Mourinho grét á blaðamannafundi Fótbolti Dildó-faraldurinn heldur áfram í WNBA Körfubolti Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Enski boltinn Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Enski boltinn Fótboltamaður drukknaði Fótbolti Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Enski boltinn Opinberuðu sambandið með sigurkossi Formúla 1 Sjáðu Pedersen bæta metið og Skagamenn jafna með skrýtnum mörkum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Markametið hans Patricks Pedersen í tölum Verðmætustu uppöldu leikmennirnir spila í Arsenal Lyfta fólki upp til að skrifa á Jota minningarvegginn Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Lars sendi kveðju til Íslands Sjáðu Pedersen bæta metið og Skagamenn jafna með skrýtnum mörkum Evrópudeildarleikur Blika í beinni á Sýn Sport Mourinho grét á blaðamannafundi Fótboltamaður drukknaði Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Dramatík í Barcelona: Félagið í mál við eigin leikmann Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Patrick: Léttir að sjá boltann í netinu Lyon krækir í leikmann Liverpool Ómar Björn: Misreiknaði boltann Markalaust í baráttunni um brúna Uppgjör: ÍA - Valur 2-2 | Skaginn náði í stig með ótrúlegu marki Brann á toppinn og Lyngby skreið áfram í bikarnum Hansen hamingjusamur í Víkinni næstu árin Tryggvi þurfti að bíða í 257 daga eftir að bæta metið Jorge Costa látinn Partey laus á skilorði Fór að gráta þegar hún skoraði Son verður sá dýrasti í sögunni Man. United bauð 74 milljónir punda í Sesko Gervigreindin fór illa með mótherja Víkinga „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Frank Mill er látinn Shearer með skilaboð til Newcastle: Losið ykkur við Isak Sjá meira