Ásta verður framkvæmdastjóri Krónunnar Stefán Ó. Jónsson skrifar 14. júlí 2020 16:07 Ásta Sigríður Fjeldsted kemur til Krónunnar frá Viðskiptaráði.
Ásta Sigríður Fjeldsted hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Krónunnar og hefur hún störf 1. október 2020. Hún tekur við starfinu af Grétu Maríu Grétarsdóttur, sem kvaddi fyrirtækið í maí vegna ósættis við aðra stjórnendur Festar, móðurfélags Krónunnar eins og Vísir fjallaði um á sínum tíma. Festi greinir frá ráðningu Ástu í tilkynningu til Kauphallarinnar. Ásta Sigríður kemur til Krónunnar frá Viðskiptaráði, þar sem hún gegndi stöðu framkvæmdastjóra frá miðju ári 2017. Þá vann hún hjá ráðgjafafyrirtækinu McKinsey & Company, bæði á skrifstofum þess í Tókýó og Kaupmannahöfn. Þar áður var hún í starfsliði IBM í Danmörku og Össurar, bæði í Frakklandi og á Íslandi. Ásta Sigríður er vélaverkfræðingur með M.Sc. gráðu frá DTU, Tækniháskólanum í Danmörku. Í fyrrnefndri Kauphallartilkynningu segir Ásta að öflug, hagkvæm og ábyrg matvöruverslun sé einn lykilþátta í hagsæld okkar og lífskjörum almennings. „Krónan er þar afskaplega spennandi fyrirtæki sem hefur verið í mikilli sókn undanfarin ár,“ segir Ásta. „Krónan hefur á að skipa fjölda framúrskarandi starfsfólks sem hefur verið í fararbroddi á mörgum sviðum og munum við halda áfram því góða starfi, ásamt því að fást við þær miklu breytingar sem eru að verða á smásölumarkaðnum.“
Vistaskipti Verslun Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Neytendur Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira