Aron Elís í úrslitaleik um Evrópusæti - Ísaki skipt af velli í hálfleik Sindri Sverrisson skrifar 26. júlí 2020 14:26 Aron Elís Þrándarson og félagar í OB slógu Randers út. vísir/getty
Aron Elís Þrándarson er kominn í úrslitaleik um Evrópusæti í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Ísak Bergmann Jóhannesson lék aðeins fyrri hálfleik með toppliði Norrköping gegn botnliði Falkenberg í Svíþjóð. Aron Elís var í liði OB í Danmörku þegar liðið komst áfram í úrslitaleik um sæti í forkeppni Evrópudeildarinnar. OB mun mæta AGF eða FC Köbenhavn í úrslitaleiknum en það veltur á því hvort liðanna endar ofar eftir lokaumferð efsta hluta dönsku úrvalsdeildarinnar síðar í dag. Aron Elís lék allan leikinn í 1-1 jafntefli við Horsens á útivelli í dag en OB hafði unnið fyrri leik liðanna á heimavelli, 3-1, og vann því einvígið samtals 4-2. Toppliðið missteig sig gegn botnliðinu í Svíþjóð Ísak var í byrjunarliði Norrköping sem var óvænt 2-0 undir eftir fyrri hálfleik gegn botnliði Falkenberg í sænsku úrvalsdeildinni. Norrköping gerði þrefalda skiptingu í upphafi seinni hálfleiks og var Ísak einn þeirra sem þurftu að víkja. Norrköping náði að jafna metin en Falkenberg komst í 3-2 á 89. mínútu. Enn var þó tími fyrir Norrköping til að jafna úr víti á síðustu stundu, 3-3. Norrköping er áfram á toppnum, með 24 stig, fjórum stigum á undan Elfsborg og fimm stigum á undan Malmö sem á leik til góða síðar í dag. Stigið dugði Falkenberg til að komast af botninum í bili, en liðið er stigi fyrir ofan Helsingborg og Kalmar sem eiga leik til góða.
Danski boltinn Sænski boltinn Mest lesið Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Handbolti „Þetta er alveg ótrúlegur grís“ Sport Eini leikmaðurinn sem gaf boltann aldrei á EM Handbolti „Fannst ég mjög ryðgaður ef ég á að vera alveg hreinskilinn“ Sport Meistararnir stöðvuðu Mosfellinga Handbolti Juve hent út úr bikarnum í vel heppnaðri hefndartilraun Fótbolti Uppgjörið: Valur - Haukar 34-41 | Hafnfirðingar tylla sér á toppinn Handbolti Kom í einkaflugvél á Ólympíuleikana Sport Oddur í ham og Þór dró Stjörnuna niður í fallbaráttu Handbolti Fleiri fréttir Juve hent út úr bikarnum í vel heppnaðri hefndartilraun Alfons lá eftir en fékk svo boltann og skoraði Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti Fjölgar í hópi Íslendinga hjá Inter Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Heillaður af Hollandi og lætur ekki háan verðmiða trufla sig „Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía“ „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði „Don Orri Steinn Óskarsson“ Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Verkfalli Ronaldo lokið Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Böðvar kominn til ÍA frá FH Verjast fótboltabullum með andlitsgreiningu á völlunum Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Reif buxurnar nánast af Yamal sem lét ekki stoppa sig Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Víkingar keyptu Helenu af Val Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Hættir hjá félaginu eftir að börnin hans urðu fyrir kynþáttaníði Stjarnan sækir miðvörð að vestan Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Úkraínumenn æfir vegna orða forseta FIFA: „Minnir á Ólympíuleikana 1936“ Sjá meira