Selá og Hofsá að eiga gott veiðitímabil Karl Lúðvíksson skrifar 10. ágúst 2020 07:56 Veiðin í Selá hewfur verið mjög góð í sumar. Mynd: Strengur angling FB
Þegar veiðitölur eru skoðaðar er reglulega gaman að sjá hvað árnar á norðausturlandi eru að koma vel inn og eiga gott sumar. Við höfum greint frá veiðinni í Jöklu sem er ekki langt frá þeim en þar á bæ stefnir líklega í eitt besta sumar í ánni þegar veiðin er komin í 458 laxa og þar með komin yfir veiðina í fyrra. Þar á bæ gengur mjög vel og er mikill lax í ánni. Selá og Hofsá eru að sama skapi að eiga virkilega gott sumar og miðað við magn af laxi í báðum ánum eiga þeir mikið inni. Heildarveiðin í Hofsá er komin í 576 laxa og það styttist hratt í að hún nái heildarveiðinni í fyrra en á samt næstum því helminginn af tímabilinu eftir svo hún stefnir með hraðbyr í að ná að okkur sýnist góðri tölu í sumar haldi veiðin áfram að vera jafn góð og hún hefur verið. Selá er líka í fluggír með heildarveiði upp á 620 laxa. Þegar tölur eru skoðaðar nokkur ár aftur í tímann þá sérstaklega á góðum og meðalárum gæti áinn endað einhvers staðar þar á milli. Það er eins og í Hofsá mikið af laxi í ánni, frábært vatn og nægur tími til að hækka töluna vel í ánni.
Stangveiði Mest lesið Flugufréttir og Veiðivon fagna veiðisumrinu næsta föstudag Veiði Dýrasti dagurinn á 450.000 í Laxá í Ásum? Veiði Góður lokasprettur í Jöklu Veiði Gömul en fyndin saga af ungum veiðiþjófum Veiði 88 sentimetra hrygna í Mýrarkvísl Veiði Verður að gæda við Rio Grande til vors Veiði SVFR áfram með Leirvogsá Veiði Dýrbítur að verða ein vinsælasta vorflugan Veiði Veiðistaðir sem detta inn og út Veiði Affallið alltaf gott á haustin Veiði