Sverrir Ingi hafði betur gegn Ögmundi | Alfreð lék í jafntefli Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 15. febrúar 2020 17:45 Sverrir Ingi fagnaði enn einum sigrinum í dag. Vísir/to10.gr
Sverrir Ingi Ingason hafði betur gegn Ögmundi Kristinssyni í Íslendingaslag grísku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag þegar PAOK lagði Larissa 2-1 á útivelli. Báðir léku allan leikinn í sínum liðum, Ögmundur í marki Larissa og Sverrir Ingi í hjarta varnarinnar hjá PAOK. PAOK hefur verið á miklu skriði undanfarið og sigurinn því ekki beint óvæntur. Dimitris Limnios kom gestunum yfir á 14. mínútu og þegar komið var fram á þriðju mínútu uppbótartíma í fyrri hálfleiks tvöfaldaði Douglas Augusto forystu PAOK. Theocharis Iliadis minnkaði muninn fyrir heimamenn á þeirri 67. en þar við sat. Lokatölur 2-1 PAOK í vil en Sverrir Ingi fékk gult spjald í uppbótartíma leiksins. PAOK er nú jafnt Olympiakos á toppi deildarinnar með 58 stig þegar 24 umferðum er lokið en Larissa er í 10. sæti með 26 stig. Í þýsku úrvalsdeildinni var Alfreð Finnbogason í byrjunarliði Augsburg sem gerði 1-1 jafntefli við Freiburg. Alfreð var tekinn af velli á 80. mínútu og náði ekki að setja mark sitt á leikinn. Alfreð og félagar eru í 11. sæti með 27 stig á meðan Freiburg er í því 7. með 33 stig.
Fótbolti Þýski boltinn Mest lesið Svakaleg slagsmál í æfingarleik á Spáni Fótbolti Ísland í átta liða úrslit eftir ótrúlega endurkomu Körfubolti „Ég hef aldrei séð Stjörnuna spila svona“ Íslenski boltinn Aðeins sjö lið í heiminum eytt meira en nýliðar Sunderland Enski boltinn Sara Björk áfram í Sádi-Arabíu Fótbolti „Mæli með að dómarar nái þessum hraða með boltann“ Íslenski boltinn Dildó-faraldurinn heldur áfram í WNBA Körfubolti „Ég er mjög þreyttur“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Evrópuævintýri Breiðabliks og Víkings ásamt Bestu kvenna Sport Uppgjörið: Afturelding - Vestri 1-1 | Deila með sér stigunum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Svakaleg slagsmál í æfingarleik á Spáni Aðeins sjö lið í heiminum eytt meira en nýliðar Sunderland Sara Björk áfram í Sádi-Arabíu „Ég hef aldrei séð Stjörnuna spila svona“ „Ég er mjög þreyttur“ Uppgjörið: Afturelding - Vestri 1-1 | Deila með sér stigunum „Mæli með að dómarar nái þessum hraða með boltann“ Uppgjörið: Fram - Stjarnan 1-1 | Allir ósáttir eftir jafntefli Leiknir selur táning til Serbíu Hólmbert Aron til Suður-Kóreu Katla kynnt til leiks í Flórens Markametið hans Patricks Pedersen í tölum Verðmætustu uppöldu leikmennirnir spila í Arsenal Lyfta fólki upp til að skrifa á Jota minningarvegginn Segir að þeir hafi notað Newcastle í pókerleik Ratcliffe-mótmæli á leik Manchester United og Arsenal Lars sendi kveðju til Íslands Sjáðu Pedersen bæta metið og Skagamenn jafna með skrýtnum mörkum Evrópudeildarleikur Blika í beinni á Sýn Sport Mourinho grét á blaðamannafundi Fótboltamaður drukknaði Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Dramatík í Barcelona: Félagið í mál við eigin leikmann Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Patrick: Léttir að sjá boltann í netinu Lyon krækir í leikmann Liverpool Ómar Björn: Misreiknaði boltann Markalaust í baráttunni um brúna Uppgjör: ÍA - Valur 2-2 | Skaginn náði í stig með ótrúlegu marki Brann á toppinn og Lyngby skreið áfram í bikarnum Sjá meira