Polestar Precept rafbíll úr endurunnu plasti Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 26. febrúar 2020 07:00 Polestar Precept. Vísir/Polestar
Polestar, rafsportbílamerki Volvo hefur kynnt nýjan bíl. Polestar Precept er afar umhverfisvænn bíll, ekki nóg með að hann sé rafbíll heldur er hann að miklu leyti úr endurunnum plastvörum. Precept er enn sem komið er á hugmyndastigi en að sögn forsvarsmanna Polestar er ekki ólíklegt að Precept fari í framleiðslu. Ekki liggja fyrir upplýsingar um drægni eða hröðun bílsins. Bíllinn er á stærð við Mercedes-Benz S-Class, með yfir þrjá metra á milli fram og afturöxlanna. Það er því líklega gott pláss í bílnum bæði fyrir fólk og rafhlöður. Sæti bílsins eru að mestu leyti úr endurunnum plastflöskum og áklæðið úr endurunnum kork. Gólfefnið og motturnar eru úr endurunnum gömlum netum. Innra rými Precept er að miklu leyti úr endurunnum plastefnum.Vísir/Polestar „Precept er yfirlýsing og sýn á það sem Polestar stendur fyrir og sönnun á því hversvegna vörumerkið skiptir máli,“ sagði Thomas Ingenlath, framkvæmdastjóri Polestar. Hann bætti við að „bíllinn er í raun viðbragð við þeim áskorunum sem samfélagið og bílaiðnaðurinn stendur frammi fyrir. Þetta er ekki draumur um fjarlæga framtíð. Polestar Precept gefur innsýn inn í framtíðar bílahönnun og sýnir hvernig við munum beita hugviti til að tryggja sem minnst áhrif á umhverfið.“ Auk þess að vera umhverfisvænn er Precept hlaðinn nýjustu tækni, þar með talið LIDAR búnaði sem er nauðsynlegur fyrir sjálfkeyrandi virkni. Þá hefur loftflæðið um bílinn fengið mikla athygli. Hann er búinn svokölluðu S-loftinntaki sem virkar ekki ósvipað framvæng á Formúlu 1 bíl. Þar sem loft er tekið inn að framan, sett í gegnum göng þar sem loftið myndar niðurtog og það svo losað upp í gegnum það sem venjulega væri vélarhlíf. Slíkt ætti að veita mikið grip að framan.
Bílar Tengdar fréttir Lewis Hamilton vill að Mercedes-Benz hætti að nota leður Lewis Hamilton ökumaður Mercedes-Benz liðsins í Formúlu 1 hefur farið þess á leit við bílaframleiðandann að hætt verði að nota leður í framleiðslu bílanna. 13. desember 2019 07:00 Mest lesið „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Innlent Fjölskyldan í sárum og biður foreldra um að fylgjast með netnotkun barna Innlent Starmer segir af sér Erlent Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Innlent Telur að það eigi að gera bíla upptæka vegna utanvegaaksturs Innlent „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Innlent Hrafni bjargað af þaki Byko Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Skartgripaþjófur sigldi undir fölsku flaggi í íbúðum aldraðra Innlent
Lewis Hamilton vill að Mercedes-Benz hætti að nota leður Lewis Hamilton ökumaður Mercedes-Benz liðsins í Formúlu 1 hefur farið þess á leit við bílaframleiðandann að hætt verði að nota leður í framleiðslu bílanna. 13. desember 2019 07:00