Íslendingarnir léku báðir í fyrsta tapi CSKA | Amanda kom af bekknum Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 19. ágúst 2020 19:25 Hörður Björgvin var í byrjunarliði CSKA en Arnór hóf leikinn á bekknum. vísir/getty
Hörður Björgvin Magnússon og Arnór Sigurðsson léku báðir með CSKA Moskvu er liðið tapaði 2-1 fyrir Zenit St. Pétursborg í rússnesku úrvalsdeildinni í dag. Amanda Andradóttir kom af varamannabekk Nordsjælland í þeirri dönsku er liðið tapaði einnig sínum fyrstu stigum á tímabilinu. Hörður Björgvin var kominn aftur á sinn stað í vörn CSKA Moskvu en Arnór hóf leikinn á bekknum. Heimamenn í Zenit hófu leikinn betur og Íraninn Sardar Azmoun kom þeim yfir þegar aðeins nítján mínútur voru liðnar af leiknum. Nikola Vlašić jafnaði metin fyrir CSKA aðeisn sjö mínútum síðar og staðan því jöfn 1-1 í hálfleik. Azmoun bætti við öðru marki sínu á 69. mínútu og þar við sat. Lokatölur 2-1 fyrir Zenit en þetta var fyrsta tap CSKA í deildinni á þessu tímabili. Arnór kom inn af bekknum á 81. mínútu leiksins. CSKA dettur við þetta niður í 5. sæti deildarinnar með tvo sigra eftir þrjár umferðir. Zenit er með fullt hús stiga á toppnum. Í Danmörku gerðu Nordsjælland og Bröndby 1-1 jafntefli. Hin unga og efnilega Amanda Andradóttir kom inn af varamannabekk Nordsjælland á 76. mínútu. Líkt og CSKA voru þetta fyrstu stigin sem Nordsjælland tapar á leiktíðinni. Liðið er í 2. sæti með sjö stig eftir þrjár umferðir en Thy – Thistedq er eina liðið með fullt hús stiga.
Fótbolti Rússneski boltinn Danski boltinn Mest lesið Þjálfari sem mætti Víkingi í fyrra lést í miðjum leik Fótbolti Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Handbolti „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Íslenski boltinn Umboðsmaður hótaði leikmanni með byssu Fótbolti Ronaldo kveðst vera betri en Messi: „Vil ekki vera hógvær“ Fótbolti Alfreð klæddist kvennatreyjunni á leiknum við Ísland Handbolti Hverjir eru bestu ungu strákarnir í Bónus-deildinni? Körfubolti Dagskráin í dag: Stórleikir í Meistaradeildinni Sport Söguleg byrjun OKC á tímabilinu Körfubolti Fannst Tottenham spila eins og fjórðu deildarlið gegn Chelsea Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu glæsilegan einleik Ndiayes og jöfnunarmarkið frá Xhaka „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Ronaldo kveðst vera betri en Messi: „Vil ekki vera hógvær“ Fannst Tottenham spila eins og fjórðu deildarlið gegn Chelsea Þjálfari sem mætti Víkingi í fyrra lést í miðjum leik Umboðsmaður hótaði leikmanni með byssu O'Neil tekur ekki við Úlfunum á ný Emilía opnaði markareikninginn gegn Ingibjörgu Fyrsti sigur í hús hjá Genoa Yfirburðir Sunderland dugðu ekki til sigurs Segir Wirtz enn vera að venjast leikjaálaginu Spence og van de Ven báðust afsökunar Telja United mun líklegra til að enda í sjöunda en öðru sæti Rekinn eftir aðeins fimm mánuði í starfi Leitin heldur áfram og Lúðvík leysir af Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta Ósammála um Gyökeres: „Hefðirðu verið ánægður með fjögur mörk?“ Eigandi Forest býður fram aðstoð eftir stunguárásina Gæti tekið við Úlfunum ellefu mánuðum eftir að hafa verið rekinn frá þeim Sjáðu mörkin úr kærkomnum sigri West Ham og tvennu Haalands Van Dijk frábiður sér letilega gagnrýni Rooneys Segir allt tal um leiðinlegan fótbolta hjá Arsenal heimskulegt Guardiola segir að dómararnir hafi verið á móti City í áratug Viðtökurnar á Anfield munu ekki breyta neinu „Örugglega nokkrir Fantasy-þjálfarar ósáttir“ Lygilega jafnt á toppnum eftir sigur AC Milan „Haaland er þetta góður“ Spánarmeistararnir halda í við toppliðið „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Sjá meira