Citroën með 7 ára ábyrgð Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 13. nóvember 2020 07:00 C5 Aircross
Nýir Citroën bílar frá Brimborg eru nú með sjö ára ábyrgð og átta ára ábyrgð á drifrafhlöðu. Ábyrgðin er víðtæk verksmiðjuábyrgð fyrir fólksbíla og sendibíla. Citroën hefur verið í fararbroddi tækninýjunga í bílgreininni alla tíð í yfir 100 ára sögu sinni og býðst nú með sjö ára víðtækri verksmiðjuábyrgð á nýjum fólksbílum og sendibílum, segir í fréttatilkynningu frá Brimborg. Auk þess býður Citroën átta ára ábyrgð á drifrafhlöðu rafbíla. Ábyrgðin er einnig háð akstri og takmarkast við akstur að hámarki 140 -160 þúsund km, hvort sem kemur á undan, km fjöldi eða tími. Citroen Ë C4 Ábyrgð drifrafhlöðu miðast við að hleðslugetan fari ekki undir 70% á átta árum. Ábyrgðin er í boði á bílum keyptum af Brimborg og er háð því að bíllinn fylgi ferli framleiðanda um þjónustuskoðanir. Regluleg þjónusta og víðtæk verksmiðjuábyrgð nýrra Citroën bíla frá Brimborg tryggir meira öryggi, lægri rekstrarkostnað, hærra endursöluvirði og hraðari endursölu. Forsendur ábyrgðar Greinargóðar upplýsingar um skilmála ábyrgðar Citroën er finna í rafrænni eigandahandbók ásamt viðauka sem söluráðgjafi fer vel yfir við afhendingu nýrrar bifreiðar. Brimborg fylgir stöðluðu þjónustueftirliti framleiðanda sem tryggir að bíllinn er ávallt í topp standi. Þjónustuverkstæði Brimborgar eða viðurkenndir þjónustuaðilar Brimborgar á landsbyggðinni framkvæma reglubundna þjónustu á 12 mánaða eða 15.000 km fresti hvort sem kemur á undan km fjöldi eða tími og er þjónustueftirlitið á föstu verði. Viðgerðir sem falla undir ábyrgð Allir viðurkenndir þjónustuaðilar Citroën geta annast viðgerðir sem falla undir ábyrgð.
Mest lesið Ein lægð fjarlægist en önnur djúp nálgast Veður Viðræður eða ekki viðræður, þarna er efinn Erlent „Okkar bestu menn valdir í afísinguna“ Innlent Notuðu myndavélar klerkastjórnarinnar til að fella Khamenei Erlent „Hætt við því að byggingamarkaðurinn fari í frost“ Innlent Fluginu aflýst eftir að vélin rann út af akbraut Innlent Meloni beið „bitran“ ósigur í þjóðaratkvæðagreiðslu Erlent Mikið að gera á mörgum vígstöðvum Innlent Flugvél fór út af og öllum brautum lokað Innlent „Gærdagurinn reyndi á kerfið sem stóð sig vel“ Innlent