JóiPé, Muni og Ísidór gefa út Hata mig Ritstjórn Albumm skrifar 7. desember 2020 15:01 JóiPé, Muni og Ísidór eru meðlimir í listahópnum Vill. Vill er listahópur sem samanstendur af þeim JóaPé, Muna og Ísidór. Hata mig er fyrsta lagið sem þeir gefa út, sem er á væntanlegri plötu þeirra, Milljón ár.
Vill kallar sig listahóp en ekki hljómsveit þar sem önnur verkefni utan tónlistar eru á döfinni, en verða tilkynnt seinna. JóiPé hefur hlotið mikið lof fyrir lög sín sem hann hefur gefið út ásamt Króla. Þetta er hins vegar fyrsta lag sem þeir Muni og Ísidór senda frá sér. Jói og Ísidór stunda báðir nám við tónsmíðar í Listaháskóla Íslands en Muni stundar einnig nám þar í fatahönnun. Væntanleg plata þeirra fjallar um ást, næturlíf og geðheilbrigði. Hljóðheimur plötunnar er bæði tilraunakenndur og hefðbundinn en þeir draga innblástur frá house- og popptónlist.
Tónlist Mest lesið Vill 700 milljónir fyrir höllina Lífið Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Lífið Geoff og Ásta Margrét nýtt par Lífið Fannar og Vala keyptu fyrir 170 milljónir í Kjalarlandi Lífið Drengurinn sem dó Lífið Prinsinn og prinsessan ætla að flytja heim á næsta ári Lífið Hefur verið 73 kíló í 55 ár en bætti aðeins á sig þegar bjórinn var leyfður Lífið Nakinn á kóræfingu Lífið Vetrarhátíðin sjaldan verið stærri Menning „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið