Dagbók Urriða - Hlaðvarp um veiði Karl Lúðvíksson skrifar 10. desember 2020 09:04 Ólafur Tómas Guðbjartsson hefur byrjað með hlaðvarp undir nafninu "Dagbók Urriða" og auk þess er hann með fleira skemmtilegt í býgerð.
Ólafur Tómas Guðbjartsson hefur byrjað með hlaðvarp undir nafninu "Dagbók Urriða" og auk þess er hann með fleira skemmtilegt í býgerð. Þeir eru ekki margir veiðimennirnir sem eru jafn duglegir að setja inn skemmtilegar myndir, myndbönd og frásagnir inná Facebook eins og Ólafur og í ljósi þess sem við höfum heyrt er ljóst að aðdáendum hans fer að fjölga. Ástæðan er sú að það eru væntanlegir veiðiþættir frá honum inná Stöð 2 í vor og það eru sannarlega gleðifréttir enda taka stangveiðimenn öllum veiðiþáttum fagnandi til að stytta stundir fram að því þegar veiðin hefst. En þangað til sjónvarpsþættirnir fara í loftið getum við skemmt okkur við hlaðvarpið hjá honum sem er fullt af fróðleik og skemmtilegheitum. Hér er smá tilkynning frá Ólafi um hlaðvarpið "Dagbók Urriða". Hlaðvörpin koma vikulega. "Hverjum hefur ekki langað að kíkja aftur til fortíðar og sjá hvernig veiðin var fyrir aldamótin 1900. Dagbók Urriða podcast reynir að komast að því með hjálp Bjarna Sæmundssonar, sem árið 1896 fór um ísland með 800 króna styrk frá íslenska ríkinu, og rannsakaði fiskana okkar, veiðar og veiðimennina. Það hefur gríðarlega mikið breyst á þessum tæpum 130 árum. Sumt til hins verra en flest til hins betra. Dagbók Urriða fær að laumast með og kemur sér síðan aftur til nútímans og ber saman það sem var og það sem er."
Stangveiði Mest lesið Hættir að veiða í Skotlandi Veiði Kennslumyndband um notkun tökuvara í veiði Veiði Stórlax og sjóbirtingur í Affallinu Veiði Sauðlauksvatn hefur verið að gefa feyknagóða veiði Veiði Veiðin komin á gott skrið í Veiðivötnum Veiði Viðrar illa til rjúpnaveiða á föstudag Veiði Korpa rannsökuð niður í grunninn Veiði Nokkuð jöfn veiði í Eystri Rangá Veiði Breyttar veiðireglur á veiðisvæði Iðu Veiði Hylurinn er vikulegt hlaðvarp um veiði Veiði