Hvílir Geirfinnur hér? Jón Ármann Steinsson skrifar 23. febrúar 2021 12:30 Á vormánuðum 1980 var Hásteinn ÁR-8 á humarveiðum suð-austur af Vestmannaeyjum. Það var rjómalogn og sléttur sjór þegar skipverjar drógu inn trollið og tæmdu pokann á dekkið. Innan um humarinn sást glitta í tvö vaðstígvél, og þegar betur var að gáð neðri helming af mannslíkama klæddan í gallabuxur með leðurbelti um mittið. Nálykt fyllti lognið og skipverjar brugðu á það ráð að setja líkið í tunnu með loki. Þá var haldið til hafnar í Eyjum þar sem lögreglan beið á kæjanum. Hér gæti frásögnin endað ef ekki væri fyrir það að einskiss manns var saknað og engin tilraun var gerð, hvorki fyrr né síðar, til að finna út hver þessi óþekkti sjómaður væri. Af því beltið var með silfursylgju gat lögreglan sér til að hér væri um útlending að ræða. Þá var ómögulegt að segja til um hversu lengi útlendingurinn hafði hvílt í sjó. Þar með endaði lögreglurannsóknin. Víkur nú sögunni til Vestmannaeyja þann 20 nóvember 1974. Þrír menn komu til eyja, og tveir þeirra fóru þaðan aftur, og eftir það spurðist ekkert til hins þriðja. Já, þetta hljómar eins og saga um ekki neitt, en engu að síður varð þessi heimsókn til þess að endurupptaka Geirfinnsmálsins tók vinkilbeygju árið 2016. Lögreglan yfirheyrði mennina tvo og fyrrum lagskonu annars þeirra en ekkert kom út úr því. Svo var pælt í hvort og hvernig Geirfinnur gæti hafa komið til Eyja daginn eftir að hann hvarf í Keflavík, og ef þriðji maðurinn var ekki sjálfur Geirfinnur, hver var hann þá, og hvað varð svo um þriðja manninn? Stokkseyrarkirkja og minnisvarði um Óþekkta sjómanninn.Guðmundur Guðmundsson Gróusögurnar lognuðust brátt útaf enda engin svör. Í millitíðinni finnst sjórekið lík árið 1980 sem enginn veit deili á en engin gróusaga verður til úr því hráefni; Var líkið Geirfinnur? Var þarna fram kominn þriðji maðurinn? Eða bara einhver óþekktur útlendur sjómaður? Í algjöru upplýsingatómi um þennan meinta óþekkta sjómann tók stýrimaður Hásteins sig til og hóf fjársöfnun. Sá var frá Stokkseyri og bar sterkar taugar til kirkjunnar á staðnum. Taldi hann plássinu til bóta ef líkið yrði jarðað þar og reistur minnisvarði helgaður „Óþekkta sjómanninum“. Fjársöfnunin gekk vonum framar og minnisvarðinn er Stokkseyringum og kirkjugarðinum til sóma. Eftir jarðsetningu með viðhöfn virðast allir hafa sætt sig við að um væri að ræða „varanlega óþekktan sjómann“ og algjör óþarfi að finna út hver hann væri. Skítt með tilkomu DNA sem gæti sýnt ættartré í báða ættliði um aldir og jafnvel birt nafn hans í leitarniðurstöðum á netinu. Þá er eflaust einhversstaðar fjölskylda sem veltir því fyrir sér hvað varð um þennan horfna ættingja sinn. Kannski er það fólk í útlöndum, eða fólk hér heima á Íslandi? Hver veit? Þá er komið að lausn gátunnar, eða í það minnsta formálanum að lausninni. Á rykfallinni skrifstofu inni í íslenska ríkisbákninu situr embættismaður og les vefblöðin, þessa sömu grein og þú ert að lesa núna hér á Vísi. Þessi embættismaður er samviskusamur með afbrigðum og beintengdur hinni stórmerkilegu Kennslanefnd. Nefndin sú hefur ekki mikið fyrir stafni dags daglega og virðist ekki knúin af frumkvæðisáráttu heldur bíður skipana að ofan. En þessi embættismaður okkar hefur bæði faglegan metnað og auk þess persónulegan áhuga á Geirfinnsmálinu. Hann tekur snarlega upp símann, hringir í formann nefndarinnar... ...og ef sá hinn sami svarar kallinu þá kemur kannski ný forsíðufrétt hér á vefnum síðar meir: Týndi sjómaðurinn er fundinn! Og nafnið hans og æviágrip fylgir, einnig viðbrögð ættingja og þakklæti þeirra til Kennslanefndar eftir áratuga vangaveltur. En því miður er hæpið að þetta verði forsíðufrétt um að Geirfinnur sé loks fundinn í ómerktri gröf á Stokkseyri, þökk sé Kennslanefnd. En allt eru þetta innantómar spekúlasjónir nema formaður Kennslanefndar svari símanum. Höfundur starfar við nýsköpun. Heimildarmaður: Gylfi Jónsson, skipstjóri á Hásteini ÁR-8. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Árborg Mest lesið Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson Skoðun Dýrkeypt vinavæðing á vakt lögreglustjórans Ólafur Hauksson Skoðun Börn í biðröð hjá Sýslumanni Helga Vala Helgadóttir Skoðun Íslandsklukkan: Markleysa frá upphafi Gunnar Salvarsson Skoðun Svöng Eflingarbörn Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun Fyrir hvað stöndum við? Brynja Hallgrímsdóttir Skoðun Úr myrkri í von – Saga Grindvíkinga Bryndís Gunnlaugsdóttir Skoðun COP30, Ísland, lífsskilyrði og loftslagsvá Kamma Thordarson Skoðun Pops áttu p? Benedikt S. Benediktsson Skoðun Ríkisstjórnin hækkar leigu stúdenta Arent Orri J. Claessen,Viktor Pétur Finnsson Skoðun Skoðun Skoðun Snjall notandi, snjallari gervigreind Agnar Burgess skrifar Skoðun Ráð gegn óhugsandi áhættu Hafsteinn Hauksson,Reynir Smári Atlason skrifar Skoðun Forysta í sjálfbærni á bakslagstímum: Sterk gildi eru enn mikilvægari en áður Dr. Andreas Rasche skrifar Skoðun Fimm ára afmæli Batahúss Agnar Bragason skrifar Skoðun Takk! Borghildur Fjóla Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslandsklukkan: Markleysa frá upphafi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Um stöðu íslenskukennslu á Íslandi Kjartan Jónsson skrifar Skoðun Gasa: Löng og torfarin leið til endurreisnar Philippe Lazzarini skrifar Skoðun Pops áttu p? Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin hækkar leigu stúdenta Arent Orri J. Claessen,Viktor Pétur Finnsson skrifar Skoðun Annar í feðradegi…og ég leyfi mér að dreyma Ólafur Grétar Gunnarsson skrifar Skoðun Orkuskiptin heima og að heiman Eiríkur Hjálmarsson skrifar Skoðun Fyrir hvað stöndum við? Brynja Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun COP30, Ísland, lífsskilyrði og loftslagsvá Kamma Thordarson skrifar Skoðun Dýrkeypt vinavæðing á vakt lögreglustjórans Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Svöng Eflingarbörn Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Úr myrkri í von – Saga Grindvíkinga Bryndís Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Þak yfir höfuðið er mannréttindi ekki forréttindi Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar Skoðun Glæpur eða gjörningur? Sigfús Aðalsteinsson,Baldur Borgþórsson skrifar Skoðun Við erum að vinna fyrir þig Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Börn í biðröð hjá Sýslumanni Helga Vala Helgadóttir skrifar Skoðun Sofandaháttur Íslands í nýrri iðnbyltingu Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Byggjum fyrir síðustu kaupendur Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Það sem við segjum er það sem við erum Guðný Björk Pálmadóttir skrifar Skoðun Óásættanleg bið, fordómar og aðrar hindranir í kerfinu Helga F. Edwardsdóttir skrifar Skoðun Má bjóða þér einelti? Linda Hrönn Bakkmann Þórisdóttir skrifar Skoðun Fyrir hverja eru ákvarðanir teknar? Helga Þórisdóttir skrifar Skoðun Þá var „útlendingur“ ekki sá sem kom frá framandi heimsálfum Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Kann barnið þitt að hjóla? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er ég Íslendingur? En þú? Jón Pétur Zimsen skrifar Sjá meira
Skoðun Forysta í sjálfbærni á bakslagstímum: Sterk gildi eru enn mikilvægari en áður Dr. Andreas Rasche skrifar