Tékknesku landsliðsmennirnir styðja við bakið á meintum rasista Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. mars 2021 14:30 Ondrej Kúdela (lengst til hægri), leikmaður Slavia Prag, er sakaður um að hafa beitt Glenn Kamara, finnska landsliðsmanninn hjá Rangers, kynþáttaníði. getty/Ian MacNicol Samherjar Ondrejs Kúdela í tékkneska fótboltalandsliðinu styðja við bakið á honum þrátt fyrir að hann hafi verið sakaður um að beita Glen Kamara, leikmann Rangers, kynþáttaníði.
Atvikið átti sér stað í leik Rangers og Slavia Prag í sextán liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Skoska lögreglan og Knattspyrnusamband Evrópu er með málið til rannsóknar. Tékkland mætir Wales í undankeppni HM 2022 í Cardiff í kvöld. Kúdela átti ekki að fara með tékkneska liðinu til Wales en breyting varð þar á. Og að sögn Vladimirs Coufal, varnarmanns West Ham, eru tékknesku landsliðsmennirnir ánægðir með að Kúdela geti spilað gegn Wales. „Að sjálfsögðu styðja allir í tékkneska liðinu á bak við Ondrej og eru ánægðir að hann sé hér. Hann er mikilvægur hluti af hópnum. Ég get ekki tjáð mig um aðra hluti sem hafa gerst,“ sagði Coufal sem lék einnig með Kúdela hjá Slavia Prag. „Ég held að Ondrej sé ánægður með að vera hér. Hann er mikil atvinnumaður og fyrir hann er þetta ekkert vandamál.“ Kúdela er sagður hafa kallað Kamara „helvítis apa“ þegar hann gekk upp að honum og hvíslaði að honum í leik Rangers og Slavia Prag 18. mars. Slavia Prag bannaði Kúdela upphaflega að ferðast með tékkneska landsliðinu til Wales þar sem félagið óttaðist um öryggi hans. Þeir gáfu þó eftir á endanum og Kúdela verður með í leiknum í Cardiff í kvöld. Kúdela, sem var 34 ára á föstudaginn, hefur leikið sex leiki fyrir tékkneska landsliðið.
HM 2022 í Katar Evrópudeild UEFA Mest lesið Dramatík í Barcelona: Félagið í mál við eigin leikmann Fótbolti Hefur eignast barn en þarf samt að sanna það að hún sé kona Sport Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Enski boltinn Fótboltamaður drukknaði Fótbolti Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Enski boltinn Lyon krækir í leikmann Liverpool Enski boltinn Patrick: Léttir að sjá boltann í netinu Fótbolti Ómar Björn: Misreiknaði boltann Fótbolti Dagskráin: Besta deildin ræður ríkjum Sport Son verður sá dýrasti í sögunni Enski boltinn Fleiri fréttir Fótboltamaður drukknaði Liverpool búið að samþykkja tilboð en nú veltur allt á Darwin Nunez Dramatík í Barcelona: Félagið í mál við eigin leikmann Tölvuleikurinn Grand Theft Auto boðar mjög gott fyrir Man. United Patrick: Léttir að sjá boltann í netinu Lyon krækir í leikmann Liverpool Ómar Björn: Misreiknaði boltann Markalaust í baráttunni um brúna Uppgjör: ÍA - Valur 2-2 | Skaginn náði í stig með ótrúlegu marki Brann á toppinn og Lyngby skreið áfram í bikarnum Hansen hamingjusamur í Víkinni næstu árin Tryggvi þurfti að bíða í 257 daga eftir að bæta metið Jorge Costa látinn Partey laus á skilorði Fór að gráta þegar hún skoraði Son verður sá dýrasti í sögunni Man. United bauð 74 milljónir punda í Sesko Gervigreindin fór illa með mótherja Víkinga „Margir sem voru tilbúnir að koma honum fyrir kattarnef fyrir mig“ Frank Mill er látinn Shearer með skilaboð til Newcastle: Losið ykkur við Isak Natasha með slitið krossband Sjáðu guttann skora geggjað mark fyrir Liverpool: Ný stjarna fædd á Anfield Máluðu dvergana sjö í kringum fræga veggmynd af Lamine Yamal Eigandi Newcastle gæti hjálpað Liverpool að kaupa Isak Hinn óendanlegi leikmannahópur Chelsea Stuðningsmönnum danska liðsins ekki hleypt inn í Svíþjóð Lars Lagerbäck lenti í slysi og kemur ekki til Íslands „Þeir standa fyrir eitthvað annað“ Kári reynir að hjálpa HK upp um deild Sjá meira