Manchester City tapaði 126 milljónum punda á síðustu leiktíð Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 7. apríl 2021 10:31 Manchester City tapaði 126 milljónum punda á síðustu leiktíð. Lindsey Parnaby/Getty Images Enska knattspyrnufélagið Manchester City hefur gefið út að félagið hafi tapað 126 milljónum punda á síðustu leiktíð. Gerir það rúma 22 milljarða íslenskra króna. Þar spilar kórónuveirufaraldurinn sinn þátt.
Kórónufaraldurinn hefur haft mikil áhrif á nær öll fyrirtæki heims undanfarna mánuði. Knattspyrnufélög eru þar á meðal. Stærstu félögin tapa eðlilega mestum pening en geta bætt upp fyrir það á ýmsa vegu. Á meðan eru smærri félög að leggja upp laupana. We have today released our Annual Report for the 2019-20 season. #ManCity | https://t.co/axa0klUGiMhttps://t.co/opzD8f0tO0— Manchester City (@ManCity) April 6, 2021 Manchester City hefur nú birt ársreikninga sína og þar kemur fram að félagið hafi tapað 126 milljónum punda á síðustu leiktíð, 2019-2020. Tekjur félagsins minnkuðu um 11 prósent en voru samt sem áður 478.4 milljónir punda samkvæmt frétt BBC. Inn í í jöfnuna vantar tekjur vegna sölu leikmanna og þá aðallega vegna Leroy Sané sem fór til Evrópumeistara Bayern München fyrir 44.7 milljónir punda. Með bónusgreiðslum getur upphæðin orðið 54.8 milljónir punda. Þá vantar einnig tekjur City vegna þátttöku í Meistaradeildinni en liðið komst í 8-liða úrslit. Reikna má með að félagið hafi fengið tíu milljónir punda fyrir það eitt að komast úr 16-liða úrslitunum í 8-liða úrslit. Forráðamenn City reikna með að faraldurinn hafi áhrif á komandi tímabil líka en tap félagsins ætti þó ekki að vera meira en 60 milljónir punda. Þá mun félagið enn geta eytt peningum í sumar. Það er ef Pep Guardiola, þjálfari liðsins, hefur áhuga á því.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið John Cena hættur að glíma Sport Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag Enski boltinn Mætti til leiks berfættur og ber að ofan í snjókomunni Sport „Ég bið Lionel Messi innilega afsökunar“ Fótbolti Segir Norðmönnum að setja hana í karlalandsliðið sitt Handbolti Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö Enski boltinn Danir og Svíar eiga í deilum um kornunga drengi Fótbolti Þjálfari Orra Steins látinn fara Fótbolti Haaland með tvennu í öruggum útisigri City Enski boltinn Lunga NFL-stjörnu féll saman eftir nálastungumeðferð Sport Fleiri fréttir „Gott fyrir svæðið, félagið og stuðningsmennina“ Sunderland vann nágrannaslaginn fyrir norðan Haaland með tvennu í öruggum útisigri City Sangaré og Hudson-Odoi hrelltu Tottenham Sjáðu sjálfsmörkin sem björguðu Arsenal og hetju Liverpool skora tvö Salah skráði sig á spjöld sögunnar í endurkomunni í dag „Stundum þarf maður heppni“ Tvö sjálfsmörk færðu Arsenal fimm stiga forkost á toppnum „Verstu 48 klukkustundirnar“ síðan að hann kom til Chelsea Fulham vann í markaleik á Turf Moor Ian Rush lagður inn á sjúkrahús „Kannski áttum við heppnina skilið í dag“ „Ég held að þetta hafi ekki verið kveðjustund“ „Þegar þú spilar fyrir Liverpool verðurðu bara að vinna leiki“ Salah lagði upp í endurkomunni en Ekitike sá um mörkin Palmer skoraði í fyrsta sinn síðan í september Mesta heillaskref ferilsins að hafa verið rekinn Varalesturinn flæktist fyrir þýska tvíeykinu „Held að ég gæti ekki hætt í fótbolta“ Salah snýr aftur eftir sáttafundinn Isak tæpur og Gakpo frá Rooney var hótað lífláti eftir að hann fór til Man Utd Slot fundar með Salah í dag: „Mun ákvarða hver næstu skref verða“ „Liverpool hefði ekkert unnið ef það væri ekki fyrir Mo Salah“ Kærasta Haaland hefur fengið nóg Girti niður um liðsfélagann í markafagni Skuldir Man United nú meira en 127 milljarðar Tóku hetjuna með sér í Evrópuleikinn Af hverju spila ekki fleiri konur Fantasy? Býður Salah velkominn til Sádi-Arabíu Sjá meira