Víða sunnanátt með skúrum á landinu Atli Ísleifsson skrifar 16. apríl 2021 07:17 Hiti á landinu verður fimm til fjórtán stig. Vísir/Vilhelm Veðurstofan reiknar með sunnan og suðaustan tíu til átján metrum á sekúndu og rigningu eða súld fyrri part dags. Bjart verður að mestu norðaustantil á landinu. Hiti á landinu verður fimm til fjórtán stig, þar sem hlýjast verður á Norður- og Austurlandi.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að það snúist í suðvestan tíu til átján metra um og eftir hádegi með skúrum eða slydduéljum um landið sunnan- og vestanvert og kólnandi veðri. Dregur úr vindi í kvöld. „Sunnan gola eða kaldi og áfram skúrir eða slydduél í fyrramálið, en léttskýjað um landið norðaustanvert. Síðdegis á morgun og annað kvöld lægir og fer að rigna allvíða. Hiti 3 til 10 stig.ׅ“ Bjartast verður á Norðausturlandi um miðjan dag, en vindasamt.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Suðlæg átt 8-13 m/s og skúrir eða slydduél, en bjartviðri á NA- og A-landi. Lægir síðdegis og fer að rigna á SA- og A-verðu landinu. Hiti 3 til 10 stig. Á sunnudag: Suðvestan 8-15 og slydduél eða él, en léttir til á NA- og A-landi. Hiti 0 til 7 stig. Á mánudag: Suðvestan og vestan 5-10 og él, en lengst af bjartviðri um landið A-vert. Hiti um eða yfir frostmarki. Á þriðjudag: Vestan 5-13 og bjart með köflum, en stöku skúrir eða él við N- og V-ströndina. Heldur hlýnandi. Á miðvikudag: Suðaustanátt og þurrt að kalla, en bjartviðri um landið N-vert. Hiti 0 til 6 stig. Á fimmtudag (sumardagurinn fyrsti): Útlit fyrir suðlæga átt með dálítilli vætu V-til, en björtu veðri eystra. Hiti 5 til 11 stig.
Veður Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fleiri fréttir Víða allhvasst og talsverð rigning Hlýrri suðlægri átt beint til landsins Hlýtt en vætusamt veður í kortunum næstu daga Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Sjá meira