Rafbíllinn Zhiji L7 státar af tæplega 1000 kílómetra drægni og þráðlausri hleðslu Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 28. apríl 2021 07:00 Zhiji L7. Zhiji L7 er kínverskur rafbíll sem vekur athygli fyrir reffilegt útlit og drægni sem er engu lík. Uppgefin drægni er 999 km. Í ofanálag er bíllinn með þráðlausri hleðslu, eitthvað sem hlýtur að verða framtíðarlausn.
Sú staðreynd að í Kína eru framleiddir heimsklassa rafbílar ætti ekki að koma neinum á óvart. Kínversk fyrirtæki með litla eða enga reynslu í bílasmíði eru að framleiða lúxus og sport rafbíla og þeim virðist ganga vel. Innra rými í Zhiji L7. Dæmi um það er Zhiji L7, hreinn rafbíll, sportlegur stallbakur sem hefur útlitið með sér. Innra rýmið er smekklegt og hefur ákveðinn framtíðarbrag yfir sér enda lítið annað en háskerpuskjáir. Bíllinn á að koma út snemma á næsta ári. Þráðlaus hleðsla er klárlega ein af þeim staðreyndum um Zhiji L7 sem eru hvað áhugaverðastar. Það verður áhugavert að fyljast með þeirri þróun sem gæti leitt til þess að bílastæði verða „hleðslustöðvar“ án þess að þurfi að stinga í samband. Hleðslugetan í gegnum þráðlausahleðslu eru 11 KW. Bíllinn á að komast frá kyrrstöðu í 100 km/klst. á 3,9 sekúndum. Zhiji L7. Zhiji L7 mun koma með 93 kWh rafhlöðu til að byrja með sem dregur 615 km. Stærri drifrafhlaða, 118 kWh er væntanleg og með henni á bíllinn að hafa drægni upp á 999 km.
Vistvænir bílar Mest lesið Segir réttarríkið standa í vegi sínum Erlent Ekki sé hægt að kaupa fólk út eða rífa hús sem séu byggð samkvæmt leyfum Innlent Ætla að hernema Gasaströndina Erlent Allt of mikið af svipuðum íbúðum á markaði skapi misræmi Innlent Bíða með að selja íbúðir frekar en að lækka verðið Innlent Víða rigning og hiti að fjórtán stigum Veður Skallaði mann og dónalegur við lögregluþjóna Innlent Fjórtán börn handtekin eftir að drengur lést í eldsvoða Erlent Segist hafa skipað hæfasta fólkið þvert á athugasemdir verkfræðinga Innlent „Þetta hefur verið sorgleg þróun“ Innlent