Vaxandi suðaustanátt, þykknar upp og fer að rigna Atli Ísleifsson skrifar 3. júní 2021 07:11 Veðurstofan spáir dálítilli rigningu vestantil á landinu, en annars þurrt. Vísir/Vilhelm Lægð nálgast nú landið og er því vaxandi suðaustanátt í dag. Veðurstofan spáir því að þegar líður á daginn muni þykkna upp og fara að rigna.
Í hugleiðingum veðurfræðings segir að það verði suðaustan tíu til fimmtán metrar á sekúndu nærri hádegi en hægari vindur norðan- og austanlands. Dálítil rigning vestantil á landinu, en annars þurrt. Hiti verður á bilinu átta til átján stig þar sem hlýjast verður norðaustantil. „Í kvöld bætir svo enn frekar í vind syðst á landinu, austan 15-20 m/s undir Eyjafjöllum sem gæti valdið vandræðum fyrir ökutæki sem eru viðkvæm fyrir vindi og vindur verður lítið eitt hægari við gosstöðvarnar sem gæti einnig verið til trafala. Dregur úr vindi í nótt, suðaustlæg átt á morgun, víða 5-10 m/s og víða dálítil væta en þurrt norðanlands fram á annað kvöld.“ Veðurhorfur á landinu næstu daga Á föstudag: Suðaustan og austan 5-13 og dálítil rigning eða súld, en þurrt að kalla norðanlands. Hiti 10 til 19 stig, hlýjast á Norðausturlandi. Á laugardag: Fremur hæg suðlæg eða breytileg átt. Skýjað að mestu og víða dálítil rigning, en yfirleitt þurrt austantil á landinu. Hiti 9 til 17 stig, hlýjast á Austurlandi. Á sunnudag (sjómannadagurinn): Sunnan og suðaustanátt, víða 5-10 m/s. Víða dálítil væta, en úrkomulítið norðaustantil á landinu. Hiti 8 til 16 stig, hlýjast norðaustanlands. Á mánudag: Sunnan 8-15 m/s og rigning á austanverðu á landinu, en þurrt að kalla vestantil. Hiti 9 til 17 stig, hlýjast á Suðurlandi. Á þriðjudag: Suðaustan átt, skýjað og úrkomulítið sunnan- og vestantil en þurrt um landið norðaustanvert. Hiti 9 til 17 stig, hlýjast vestanlands. Á miðvikudag: Austanátt og rigning í flestum landshlutum en úrkomulítið norðvestantil. Hiti 9 til 15 stig.
Veður Mest lesið Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Erlent Mikið álag á bráðamóttökunni á Akureyri Innlent Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Innlent Fimm ára dómur fyrir hnífaárás á fjölskylduföður Innlent Nauðsyn að skýra betur hvort eða hvenær læknar megi rjúfa þagnarskyldu Innlent Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Erlent Nafn unga mannsins sem lést á Vesturlandsvegi Innlent „Ellibætur“ frá ríkinu eigi að heyra sögunni til Innlent Glæpir eiga ekki að borga sig: Gæti hagnast fjárhagslega á að hafa banað föður sínum Innlent Telur hagræðingaráformin þau metnaðarfyllstu Innlent Fleiri fréttir Fer að lægja norðvestantil um hádegi Djúp lægð grefur um sig Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Tíðindalítið veður en bætir í vind í kvöld Dálítil snjókoma norðantil en þurrt sunnan heiða Lægðin á undanhaldi Víða allhvass vindur og rigning Siggi stormur spáir rauðum jólum Hellidemba í kortunum og líkur á þrumum Stormur gengur yfir sunnan- og vestanvert landið Austan stormur og gular viðvaranir á morgun Hvassviðri eða stormur og gular viðvaranir Bæta við gulri viðvörun á Vestfjörðum og miðhálendi Hvasst sunnantil og víða rigning eða slydda Hvassviðri syðst á landinu Smá rigning eða slydda víða Hiti gæti náð upp undir 10 gráður Rigning eða slydda sunnan- og vestanlands Bjart sunnan- og vestanlands en él norðan- og austantil Allhvasst syðst en hægari vindur annars staðar Bjartviðri suðvestantil en hvasst suðaustanlands Blæs hressilega af austri Stormur í kortunum Snjódýptin geti náð fjörutíu sentimetrum Gul viðvörun vegna snjókomu Snjókoma í kortunum Kuldinn bítur í kinnar landsmanna Slær í storm suðaustantil en höfuðborgarsvæðið í skjóli Allvíða él eða skúrir og flughált víða um land Hlýnar í veðri og gæti orðið flughált Sjá meira