Víða þungbúið með þoku en rofar til þegar líður á morguninn Atli Ísleifsson skrifar 5. júlí 2021 07:07 Hiti á landinu verður á bilinu tólf til 21 stig, hlýjast austanlands. Vísir/Vilhelm Það stefnir í breytilega átt í dag, þrír til átta metrar á sekúndu. Þungbúið verður með þoku víða í morgunsárið, en rofar til þegar líður á morguninn.
Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að það sé þó útlit fyrir skýjað veður á suðurhluta landsins og vætu með köflum suðaustantil. Fyrir norðan er heldur bjartara inn til landsins og líkur á stöku síðdegisskúrum. Hiti verður á bilinu tólf til 21 stig, hlýjast austanlands. „Á morgun er útlit fyrir frekar hæga sunnanátt, en þó gæti hvesst á norðanverðu Snæfellsnesi eins og vill gerast í suðlægum áttum. Skýjað og úrkomulítið víða, en þurrt og jafnvel bjart NA-til. Á miðvikudag gæti orðið nokkuð bjart víða um land, en þegar líður á daginn spáir hægt vaxandi suðvestlægri átt með vætu V-lands um kvöldið og út vikuna er útlit fyrir einhverja vætu um landið S- og V-vert, en þurrt NA-til.“ Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Suðlæg eða breytileg átt 3-10 m/s og lítilsháttar væta norðvestantil, en annars skýjað með köflum og þurrt að kalla. Hiti 12 til 21 stig, hlýjast austanlands. Á miðvikudag: Hægt vaxandi suðvestlæg átt og skýjað um landið V-vert, annars bjart með köflum. Suðvestan 5-13 m/s um kvöldið með rigningu vestast. Hiti 14 til 22 stig. Á fimmtudag: Suðvestan strekkingur, skýjað og rigning sunnantil, en annars bjart að mestu. Hiti 11 til 21 stig, hlýjast A-lands. Á föstudag: Suðlæg átt og dálítil rigning V-lands, en þurrt annars staðar og bjart norðaustantil. Hiti breytist lítið. Á laugardag og sunnudag: Útlit fyrir sunnanátt með vætu um landið sunnan- og vestanvert, annars þurrt. Hlýnar heldur.
Veður Mest lesið Trans kona á landsþingi Miðflokksins: Sagt að hún væri skömm við kvenþjóðina Innlent Ian Watkins myrtur af samföngum Erlent Snorri Másson nýr varaformaður Miðflokksins Innlent Sjö milljarða framlög frá aldamótum: Vill endurskoða rekstur Húsdýragarðsins Innlent Oddvitinn ætlar ekki aftur fram Innlent Fágætar bækur hurfu í tugatali úr bókasöfnum og reyndust allar rússneskar Erlent Vinnuslys í bakaríi Innlent Bein útsending: Landsþing Miðflokksins Innlent Hekla Aurora kveður með útsýnisflugi frá Reykjavík Innlent Líkamsárás við skemmtistað Innlent Fleiri fréttir Tuttugu stig á nokkrum stöðum Allt að 18 stig í dag Allt að átján stig fyrir austan á morgun Vindur fer smá saman minnkandi Fer að rigna og bætir í vind Smávægileg útköll vegna óveðursins Urðu fyrir sjóskvettu í beinni Spá mikilli ölduhæð við Faxaflóa í vestan hvassviðri Sjór geti gengið á land í Faxaflóa á morgun Gular viðvaranir vegna vestanstorms Dregur úr vindi og úrkomu þegar líður á daginn Hægur vindur og skúrir eða slydduél Lægð á Grænlandshafi stjórni veðrinu þennan daginn Sleppum ekki alveg við leiðindi Gular viðvaranir og allt að 45 metrar á sekúndu í hviðum Hægviðri og víða bjart Skúrir og áfram milt í veðri Suðlægar áttir og úrkoma í flestum landshlutum Sunnan strekkingur og vætusamt Allhvass vindur sunnan- og vestanlands og rigning Fyrsta haustlægðin mætt til landsins Von á mesta vindinum í marga mánuði Búast við auknu álagi á fráveitu vegna mikillar úrkomu Röð lægða með hefðbundnu haustveðri Lægðagangur næstu daga býður upp á sígilt haustveður Strekkingsvindur og fremur vætusamt næstu daga Vaxandi vindur þegar líður á daginn Grunn lægð yfir landinu í dag en suðlægir vindar á morgun Víða kaldi og allhvasst en lægir smám saman í dag Gular viðvaranir og svalri norðanátt beint til landsins Sjá meira