Breiðablik mætir Aberdeen á Laugardalsvelli Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. ágúst 2021 10:22 Breiðablik sló Austria Vín út í 2. umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu. vísir/Hulda Margrét Fyrri leikur Breiðabliks og Aberdeen í 3. umferð forkeppni forkeppni Sambandsdeildar Evrópu fer fram á Laugardalsvelli þar sem Kópavogsvöllur stenst ekki kröfur UEFA.
Blikar hafa unnið báða heimaleiki sína í Sambandsdeildinni til þessa, Racing frá Lúxemborg, 2-0, og Austria Vín, 2-1. Á fimmtudaginn verða Blikar hins vegar ekki á Kópavogsvellinum sínum heldur þjóðarleikvanginum, Laugardalsvelli. Þetta staðfesti Sigurður Hlíðar Rúnarsson, deildarstjóri knattspyrnudeildar Breiðabliks, við Vísi í morgun. „Það er ljóst að leikurinn verður á Laugardalsvelli,“ sagði Sigurður. Í 3. umferð Sambandsdeildarinnar þarf að leika á völlum í flokki 3 samkvæmt reglum UEFA. „Laugardalsvöllur er eini völlurinn á Íslandi í flokki 3 en Kópavogsvöllur og margir aðrir vellir eru í flokki 2.“ Síðast þegar Breiðablik komst í 3. umferð í forkeppni Evrópukeppni lék liðið einnig á Laugardalsvelli. Sumarið 2013 tók Breiðablik á móti Aktobe frá Kasakstan á Laugardalsvelli og vann 1-0 sigur. Staðan í einvíginu var því samanlagt 1-1 en Aktobe vann í vítaspyrnukeppni. Seinni leikur Breiðabliks og Aberdeen fer fram á Pittodrie vellinum í Aberdeen í Skotlandi fimmtudaginn 12. ágúst. Sigurvegarinn í einvíginu mætir Limassol frá Kýpur eða Qarabag frá Aserbaídsjan í umspili um sæti í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar. Breiðablik vann 4-0 sigur á Víkingi í fyrsta leik 15. umferðar Pepsi Max-deildar karla í gær. Með honum komust Blikar upp í 3. sæti deildarinnar.
Sambandsdeild Evrópu Breiðablik Laugardalsvöllur Mest lesið Þjálfari sem mætti Víkingi í fyrra lést í miðjum leik Fótbolti Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Handbolti Umboðsmaður hótaði leikmanni með byssu Fótbolti Alfreð klæddist kvennatreyjunni á leiknum við Ísland Handbolti Hverjir eru bestu ungu strákarnir í Bónus-deildinni? Körfubolti Dagskráin í dag: Stórleikir í Meistaradeildinni Sport Söguleg byrjun OKC á tímabilinu Körfubolti Emilía opnaði markareikninginn gegn Ingibjörgu Fótbolti O'Neil tekur ekki við Úlfunum á ný Fótbolti Yfirburðir Sunderland dugðu ekki til sigurs Enski boltinn Fleiri fréttir Ronaldo kveðst vera betri en Messi: „Vil ekki vera hógvær“ Fannst Tottenham spila eins og fjórðu deildarlið gegn Chelsea Þjálfari sem mætti Víkingi í fyrra lést í miðjum leik Umboðsmaður hótaði leikmanni með byssu O'Neil tekur ekki við Úlfunum á ný Emilía opnaði markareikninginn gegn Ingibjörgu Fyrsti sigur í hús hjá Genoa Yfirburðir Sunderland dugðu ekki til sigurs Segir Wirtz enn vera að venjast leikjaálaginu Spence og van de Ven báðust afsökunar Telja United mun líklegra til að enda í sjöunda en öðru sæti Rekinn eftir aðeins fimm mánuði í starfi Leitin heldur áfram og Lúðvík leysir af Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta Ósammála um Gyökeres: „Hefðirðu verið ánægður með fjögur mörk?“ Eigandi Forest býður fram aðstoð eftir stunguárásina Gæti tekið við Úlfunum ellefu mánuðum eftir að hafa verið rekinn frá þeim Sjáðu mörkin úr kærkomnum sigri West Ham og tvennu Haalands Van Dijk frábiður sér letilega gagnrýni Rooneys Segir allt tal um leiðinlegan fótbolta hjá Arsenal heimskulegt Guardiola segir að dómararnir hafi verið á móti City í áratug Viðtökurnar á Anfield munu ekki breyta neinu „Örugglega nokkrir Fantasy-þjálfarar ósáttir“ Lygilega jafnt á toppnum eftir sigur AC Milan „Haaland er þetta góður“ Spánarmeistararnir halda í við toppliðið „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Viðar Ari lagði upp tvö í Íslendingaslag Daníel Leó hetjan í dramatískum sigri Sjá meira