Slæmt heimatap Norrköping í sex stiga leik Valur Páll Eiríksson skrifar 9. ágúst 2021 19:06 Ari Freyr spilaði allan leikinn í kvöld, líkt og Ísak Bergmann. Ari Freyr Skúlason og Ísak Bergmann Jóhannesson voru báðir í byrjunarliði Norrköping sem tapaði 2-1 fyrir Kalmar í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Norrköping dregst aftur úr í baráttunni um Evrópusæti með tapinu.
Íslendingarnir tveir byrjuðu báðir í kvöld og léku allan leikinn fyrir Norrköping er Kalmar kom í heimsókn. Aðeins þremur stigum munaði á liðunum fyrir leikinn, Norrköping í hag, og gat Kalmar því jafnað liðið að stigum. Nils Fröling kom Kalmar í forystu eftir rúmlega stundarfjórðungsleik og 1-0 stóð fyrir gestina í hléi. Fröling bætti svo öðru marki við eftir aðeins sjö mínútna leik í síðari hálfleik. Norrköping tókst ekki að minnka muninn fyrr en í lok leiks er Samuel Adegbenro minnkaði muninn á fimmtu mínútu uppbótartíma. Tvö mörk Frölings tryggðu Kalmar því 2-1 sigur. Norrköping er með 20 stig í sjötta sæti deildarinnar eftir úrslit kvöldsins og Kalmar fer upp að hlið liðsins með sama stigafjölda sæti neðar. Norrköping er sjö stigum á eftir AIK sem er í þriðja sæti, neðsta Evrópusæti deildarinnar, þegar keppni í deildinni er tæplega hálfnuð. Aron Bjarnason var ekki í leikmannahópi Sirius sem gerði markalaust jafntefli við Varbergs Bois í sömu deild. Sirius er með 16 stig í ellefta sæti, fimm stigum frá fallsæti. Í Danmörku var nafni hans Aron Elís Þrándarson ekki heldur í leikmannahópi liðs síns OB frá Óðinsvéum sem tapaði 3-1 fyrir Nordsjælland á útivelli. OB er með fjögur stig í sjöunda sæti eftir fjóra leiki í deildinni.
Sænski boltinn Mest lesið Risa sigur fyrir Leeds United Enski boltinn Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Enski boltinn Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö Íslenski boltinn Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Fótbolti Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Enski boltinn Brunaði niður brekkuna viku eftir að hafa slitið krossband Sport Með móral eftir djammið og sendu þýfið á ÓL Sport „Spennið núna beltin áhorfendur góðir, þetta er svakalegt“ Sport Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Risa dagur í enska boltanum Risa sigur fyrir Leeds United Lengjubikarinn: Fylkir vann Breiðablik og FH skoraði sjö Hjörtun í vörn Íslands mættust ekki í kvöld Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Þvertaka fyrir að þjálfarinn stökkvi frá borði rétt fyrir HM Arteta með lykilmenn meidda og svaraði ásökunum Segir fótboltasérfræðinga bera ábyrgð FH sækir sænskan miðvörð Úlfar í sauðagæru? „Myndi segja að þetta sé framsækin nálgun“ Sakar Arsenal um virðingarleysi „Skrítið að klæðast grænu en það mun venjast hratt“ Leicester missir sex stig og er í mikilli hættu á að falla annað árið í röð Arne Slot: Jérémy Jacquet er gríðarlegt efni Fyrrum leikmaður Aftureldingar og Fram á forsíðu fræga sundfatablaðsins Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Juve hent út úr bikarnum í vel heppnaðri hefndartilraun Alfons lá eftir en fékk svo boltann og skoraði Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti Fjölgar í hópi Íslendinga hjá Inter Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Heillaður af Hollandi og lætur ekki háan verðmiða trufla sig „Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía“ „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði „Don Orri Steinn Óskarsson“ Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Verkfalli Ronaldo lokið Sjá meira