Rigning, suðlægir vindar og milt í dag Atli Ísleifsson skrifar 6. september 2021 07:17 Hiti á landinu verður á bilinu níu til fimmtán stig í dag. Vísir/Vilhelm Landsmenn mega búast við rólegheitaveðri í byrjun annarrar viku septembermánaðar. Almennt hægir suðlægir vindar og milt í dag, dálítil rigning eða súld, einkum sunnan og vestan til, en vestlægari og styttir víða upp með kvöldinu.
Á vef Veðurstofunnar segir að hiti verði á bilinu níu til fimmtán stig þar sem hlýjast verður fyrir austan. „Hæg norðlæg eða breytileg átt og smá skúrir á morgun, en kólnar á Norður- og Austurlandi. Fremur hæg vestlæg átt á miðvikudag og stöku skúrir, en bjart með köflum eystra og hlýnar aftur.“ Spákortið fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Norðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og víða dálitlar skúrir. Hiti 6 til 13 stig, mildast sunnan heiða. Á miðvikudag: Suðvestan 3-10 m/s og stöku skúrir S- og V-lands, en annars yfirleitt léttskýjað. Hiti 8 til 14 stig. Á fimmtudag og föstudag: Hæg suðvestlæg eða breytileg átt og bjart með köflum, en lítilsháttar væta við S- og V-ströndina. Milt veður. Á laugardag: Hægir vindar og skúrir á víð og dreif, en fremur milt að deginum. Á sunnudag: Útlit fyrir vaxandi suðaustanátt með rigningu S- og V-lands og hlýnandi veðri.
Veður Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Fleiri fréttir Kaldi og skúrir á Suðvesturlandi Víða allhvasst og talsverð rigning Hlýrri suðlægri átt beint til landsins Hlýtt en vætusamt veður í kortunum næstu daga Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Sjá meira