Hvers vegna Sósíalistaflokkinn? Þór Saari skrifar 23. september 2021 15:01 Sósíalistaflokkur Íslands er nýr á stjórnmálasviðinu en hefur þó boðskap sem er klassískur, húmanískur og mannvænn. Sósíalistaflokkurinn boðar aukinn jöfnuð og lýðræði, og einnig kærleikshagkerfi, þar sem samvinna, umhyggja og mennska er í fyrirrúmi og þar sem græðgisvæðingu allra hluta hefur verið aflýst. Hrun nýfrjálshyggjunnar haustið 2008 opinberaði rækilega innbyggða galla þess að braskvæða samfélög og gera alla hluti að markaðsvöru í braski auðmanna, auk þess að draga fram hið gerspillta samband viðskiptalífs og stjórnmála hér á landi. Framboð Sósíalistaflokks Íslands er í raun beint framhald af þeirri upplausn sem varð hér á landi þegar spillt stjórnmál og bólfélagi þeirra, viðskiptalífið, opinberuðust með þvílíkum hávaða og látum að formaður Sjálfstæðisflokksins sem bar ábyrgðina, bað guð um að blessa Ísland. Búsáhaldabyltingin í byrjun janúar 2009, þar sem þúsundir manna mótmæltu á Austurvelli í sex daga og sex nætur í köldum íslenskum janúar, var höfnun íslendinga á því kerfi spilltra Fjórflokks stjórnmála fjármögnuðum af viðskiptalífinu sem hafði verið hér við lýði. Það sem fylgdi í kjölfarið var ákveðin uppstokkun í stjórnmálum sem leiddi til nýrrar stjórnarskrár sem var svo samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta í þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2012. Sú stjórnarskrá inniheldur allt sem til þarf til að koma hér skikki á spillt elítustjórnmál. Pólitísk yfirstétt í formi íslenskra stjórnmálaflokka hefur hins vegar náð að stöðva það mál með aðferðum sem í öllum nágrannalöndum væru kallaðar réttu nafni, valdarán. Það er nefnilega svo að í lýðræðisríki kemur allt vald frá þjóðinni, nema í íslenska „lýðræðisríkinu“ þar sem skoðun kjósenda eins og hún birtist í þjóðaratkvæðagreiðslu er bara „ráðgefandi.“ Eitthvað sem er algerlega óþekkt meðal allra lýðræðisríkja. Með þeim gjörningi strikaði íslensk valdastétt hugtakið „Lýðveldi“ úr nafni landsins okkar og nú heitir það einungis Ísland og er land hinna fáu. Pólitísk og efnahagsleg yfirstétt hefur síðan þá sammælst um að halda áfram að braskvæða alla þætti samfélagsins og ekkert á lengur að vera á samfélagslegum forsendum, nema þá að einhverjir bestu vinir „aðal“ geti grætt á því peninga. Þessi siðlausa græðgisvæðing allra hluta er ógeðsleg, hún er ómennsk og hún hefur gert Ísland að einhvers kona þjófræði í anda Rússlands Pútín og annarra verst spilltu ríkja heims. Þetta er það Ísland sem við þurfum að þola í dag og höfum þurft að þola allt of lengi. En ekki meir. Sósíalistaflokkurinn er stofnaður til þess að velta þjófræði íslenskrar elítu af stalli sínum og henda alræði spilltra Fjórflokks stjórnmála (sem nú telur að vísu sex) út í hafsauga. Flokkurinn er með breiða skírskotun til allra landsmanna, nema auðmanna og spilltra stjórnmálamanna, og boðar alvöru breytingar á flest öllum sviðum samfélagsins, breytingar sem eru til hins betra fyrir allan almenning. Í fyrirrúmi er hagur hinna verst settu, sem er hagur allra almennra launþega. Í því þjófræði sem hér ríkir og gengur undir nafninu markaðshagkerfi hefur allur almenningur verið hnepptur í fjötra okurverðs á húsnæði, hvort sem er til leigu eða kaups, okurverðs á matvælum sem eru margfalt dýrari en í öllum nágrannalöndum, okurverðs á tryggingum bíla sem eru allt að því tvöfalt til þrefalt dýrari en annars staðar og okurverðs á flest öllum öðrum þáttum efnahagslífsins, að ekki sé minnst á vaxta- og kostnaðarokur fjármálakerfisins. Sú fordæmalausa afstaða íslenskra stjórnmála að dæma manneskju sem verður öryrki, til fátæktar það sem eftir er ævinnar er svo forkastanleg að það er bara ógeðslegt. Það sama gildir um eldri borgara sem upplifa sífellt meiri og hærri skerðingar á ellilífeyris sínum af hálfu ríkisvaldsins, sem hefur gert það að verkum að fólk sem hefur lokið ævistarfinu er oft þjakað af áhyggjum af þeirri framtíð sem eftir er. Fólkið sem hefur lokið starfsævinni á einmitt að hafa rífleg eftirlaun og á að fá að lifa áhyggjulausu ævikvöldi, en ekki búa við skerta afkomu og áhyggjur. Þessu mun Sósíalistaflokkurinn breyta, fái hann umboð til þess frá þér. Sósíalistaflokkurinn leggur líka mikla áherslu á að allar auðlindir Íslands séu ævarandi sameign þjóðarinnar og að þær megi aldrei gefa eða selja og aðeins leigja tímabundið gegn hæsta fáanlega gjaldi. Nú þegar hefur pólitísk- og efnahagsleg yfirstétt selt umtalsvert stóran hluta landsins til erlendra auðmanna og firðir landsins hafa verið afhentir norskum bröskurum án endurgjalds. Náttúruperlurnar okkar eru fórnalömb græðgisvæðingar undir nafninu „ferðaþjónusta“ sem er iðnaður sem gengur ekki síður hart fram gegn samfélagi og náttúru en annar mengandi iðnaður. Skýjaborgir orkubraskarana, hinna nýju gullgerðarmanna, sem erindast um landið okkar á vegum erlendra auðhringa, munu á endanum gera útaf við óbyggðirnar og hálendið verði ekkert að gert. Fiskveiði auðlindin hefur horfið úr höndum heimamanna um allt land og stórkaðað byggðirnar til þess eins að nokkrir bestu vinir „aðal“ geti auðgast að magni sem er stjarnfræðilegt venjulegu fólki. Slík græðgisvæðing og slíkt hugarfar er svo sjúklegt að það á ekkert, nákvæmlega ekkert, skylt við eðlileg viðskipti eða atvinnurekstur. En ekki meir. Þessu mun Sósíalistaflokkurinn breyta, fái hann umboð til þess frá þér. Sósíalistaflokkurinn boðar gott samfélag, samfélag kærleika. Kærleikshagkerfið, þar sem efnahagslífið er gírað inn á það að vera til hagsbóta fyrir alla, eigendur fyritækjanna jafnt sem starfsmenn og viðskiptavini. Þannig og aðeins þannig verður gott að búa á Íslandi fyrir alla, því það er markmiðið. Sósíalistaflokkurinn er með stefnu í öllum þeim málum er varða samfélagið. Heilbirgðiskerfi af bestu gerð, fyrir alla, þegar þeir þurfa, endurgjaldslaust. Húsnæðisstefnu sem gerir öllum sem vilja kleyft að leigja eða eiga húsnæði án þess að vera bundin á klafa okurs allt sitt líf. Menntastefnu sem gerir fólkið betur undirbúið að lifa í sífellt flóknari heimi. Vinnumarkaðsstefnu þar sem réttur vinnandi fólks og hagsmunasamtaka þeirra er nægilega sterkur til að ráða ferðinni í kjarasamningum og réttindum. Flokkurinn er með stefnu eins og hún gerist best fyrir allan almenning í umhverfis- og loftslagsmálum, jafnréttismálum, samgögnumálum, byggðmálum, málefnum landbúnaðar og matvælaframleiðslu, dómsmálum, utanríkismálum og samgöngumálum. Í fyrirrúmi er hagur allra og þá sérstaklega þeirra sem höllum færi standa, því sé hag okkar minnsta bróður ekki borgið ber okkur öllum, já öllum, skylda til að bæta úr því. Þessu öllu saman mun Sósíalistaflokkurinn hrinda í framkvæmd, fái hann umboð til þess frá þér. Kæri kjósandi. Á laugardaginn hefur þú val, raunverulegt val. Það val er á þína ábyrgð. Viljirðu betra samfélag fyrir alla. Fyrir foreldra þína og systkini, fyrir vini og vinnufélaga. Viljirðu betri og öruggari framtíð fyrir börnin þín, og fyrir þig. Þá hefurðu val. Svo sannarlega. Sósíalistaflokkurinn er valið. Hann er svarið og býr til leiðina til betri framtíðar fyrir þig, og fyrir þína. Vertu með. Merktu x við J á kjördag. Höfundur er hagfræðingur og skipar annað sætið á lista Sósíalistaflokksins í Suðvesturkjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Þór Saari Skoðun: Kosningar 2021 Sósíalistaflokkurinn Mest lesið „Ég ætlaði aldrei að hætta í útgerð“ Sigurgeir B. Kristgeirsson Skoðun Síbrotaferill ríkislögreglustjóra Einar Steingrímsson Skoðun 4.865 börn sem bíða í allt að fjögur ár Ragnheiður Dagný Bjarnadóttir Skoðun Að vera húsbyggjandi Hilmar Freyr Gunnarsson Skoðun RÚV brýtur á börnum Guðbjörg Hildur Kolbeins Skoðun Hærri vörugjöld, lægri samkeppnishæfni Arnar Þór Hafsteinsson Skoðun Frjósemisvandi – samfélagsleg ábyrgð og stuðningur María Rut Baldursdóttir,Sigríður Auðunsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin fellir niður jafnrétti íþrótta og gerir vont verra Unnar Már Magnússon Skoðun Gellupólitík Hlédís Maren Guðmundsdóttir Skoðun Velkomin á fjórðu vaktina Árný Ingvarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað var RÚV að hvítþvo – og til hvers? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Stjórnvöld mega ekki klúðra nýju vaxtaviðmiði Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Að vera húsbyggjandi Hilmar Freyr Gunnarsson skrifar Skoðun Hærri vörugjöld, lægri samkeppnishæfni Arnar Þór Hafsteinsson skrifar Skoðun Að einfalda veruleikann og breyta öllu í pólitískt fóður Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Tími til kominn Berglind Friðriksdóttir,Gunnsteinn R. Ómarsson,Hrönn Guðmundsdóttir,Sigfús Benóný Harðarson,Vilhjálmur Baldur Guðmundsson skrifar Skoðun Hvers virði er ég ? Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun RÚV brýtur á börnum Guðbjörg Hildur Kolbeins skrifar Skoðun Framtíðarsýn Íslands: Raunsæ tækni, græn orka og friður fyrir hugann Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Ég ætlaði aldrei að hætta í útgerð“ Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Frjósemisvandi – samfélagsleg ábyrgð og stuðningur María Rut Baldursdóttir,Sigríður Auðunsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin fellir niður jafnrétti íþrótta og gerir vont verra Unnar Már Magnússon skrifar Skoðun 4.865 börn sem bíða í allt að fjögur ár Ragnheiður Dagný Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gellupólitík Hlédís Maren Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Ísland þarf að tilnefna fulltrúa í European SET Plan Ester Halldórsdóttir skrifar Skoðun Vitundarvakning um ófrjósemi: Þekking á frjósemi er ekki lúxus – hún er lífsnauðsyn María Rut Baldursdóttir skrifar Skoðun Síbrotaferill ríkislögreglustjóra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Velkomin á fjórðu vaktina Árný Ingvarsdóttir skrifar Skoðun Hvers virði er framtíðin? Um olíuleit við Ísland Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Vísvitandi verið að skaða atvinnulífið? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Varaflugvallagjaldið og flugöryggi Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun Heimilisofbeldi er ekki einkamál – hugleiðing fyrrverandi lögreglumanns Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Á rauðu ljósi í Reykjavík Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Hefur þú tíma? Ósk Kristinsdóttir skrifar Skoðun Heilnæm fæða – íslenskur landbúnaður er grunnur öryggis okkar Ragnar Rögnvaldsson skrifar Skoðun Arnaldarvísitalan Starri Reynisson skrifar Skoðun Fjölmiðlar í kreppu Stefán Jón Hafstein skrifar Skoðun Dauðsföll í Gaza-stríðinu og Mogginn Egill Þórir Einarsson skrifar Skoðun Eyðum óvissunni Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Opinberi geirinn og stjórnunarráðgjafar: ástarsaga Adeel Akmal skrifar Sjá meira
Frjósemisvandi – samfélagsleg ábyrgð og stuðningur María Rut Baldursdóttir,Sigríður Auðunsdóttir Skoðun
Skoðun Tími til kominn Berglind Friðriksdóttir,Gunnsteinn R. Ómarsson,Hrönn Guðmundsdóttir,Sigfús Benóný Harðarson,Vilhjálmur Baldur Guðmundsson skrifar
Skoðun Framtíðarsýn Íslands: Raunsæ tækni, græn orka og friður fyrir hugann Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Frjósemisvandi – samfélagsleg ábyrgð og stuðningur María Rut Baldursdóttir,Sigríður Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin fellir niður jafnrétti íþrótta og gerir vont verra Unnar Már Magnússon skrifar
Skoðun Vitundarvakning um ófrjósemi: Þekking á frjósemi er ekki lúxus – hún er lífsnauðsyn María Rut Baldursdóttir skrifar
Skoðun Heimilisofbeldi er ekki einkamál – hugleiðing fyrrverandi lögreglumanns Sigurður Árni Reynisson skrifar
Frjósemisvandi – samfélagsleg ábyrgð og stuðningur María Rut Baldursdóttir,Sigríður Auðunsdóttir Skoðun