Arsenal kláraði Leicester í fyrri hálfleik 30. október 2021 13:26 Gavriel skoraði fyrra mark Arsenal í dag. Stuart MacFarlane/Arsenal FC via Getty Images Arsenal vann góðan 2-0 útisigur er liðið heimsótti Leicester í fyrsta leik tíundu umferðar ensku úrvalsdeildarinnar. Bæði mörkin voru skoruð á fyrstu tuttugu mínútum leiksins. Gestirnir í Arsenal byrjuðu af miklum krafti og voru óheppnir að vera ekki komnir með forystuna strax á fyrstu mínútu. Þeir urftu þó ekki að bíða lengi því fyrsta mark leiksins kom á fimmtu mínútu þegar Gabriel stýrði hornspyrnu Bukayo Saka í netið. Emile Smith-Rowe kom Arsenal svo í 2-0 á 18. mínútu eftir vandræðagang í vörn heimamanna og staðan var því 2-0 í hálfleik. Heimamenn í Leicester voru mun meira með boltann í seinni hálfleik og fengu nokkur ágætis færi til að minnka muninn og koma sér aftur inn í leikinn, en allt kom fyrir ekki og leikmenn Arsenal fögnuðu góðum 2-0 sigri. Arsenal hefur nú ekki tapað leik í ensku úrvalsdeildinni síðan liðið steinlá gegn Manchester City þann 28. ágúst. Lundúnaliðið situr í fimmta sæti deildarinnar með 17 stig eftir tíu leiki. Leicester situr í tíunda sæti með 14 stig. A huge team performance 👊A clean sheet away from home 🧤And our unbeaten run continues 💪🔵 0-2 🟡 (FT)#LEIARS pic.twitter.com/jChVWfORsN— Arsenal (@Arsenal) October 30, 2021 Enski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Íslenski boltinn
Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 2-1| Endurkomusigur Eyjamanna og uppskerubrestur Stjörnunnar Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór Ak. 1-1| Úrslit sem gera lítið fyrir bæði lið í fallbaráttunni Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Íslenski boltinn
Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 2-1| Endurkomusigur Eyjamanna og uppskerubrestur Stjörnunnar Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: FH - Þór Ak. 1-1| Úrslit sem gera lítið fyrir bæði lið í fallbaráttunni Íslenski boltinn