Snýst í sunnanvind með skúrum sunnan og vestantil Atli Ísleifsson skrifar 8. nóvember 2021 07:06 Hiti yfirleitt á bilinu þrjú til átta stig. Vísir/Vilhelm Lægð er skammt suðvestur af Reykjanesi sem fer norðaustur og úrkomuskil frá henni yfir landinu, en suðvesturhluti landsins er kominn undan þeim. Stormurinn sem geisaði um liðna nótt hefur gengið mikið niður.
Gular veðurviðvaranir tóku gildi á suðaustanverðu landinu og á hálendinu í nótt og eru í gildi nú til morguns sökum vindstrengja. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að í kjölfar skilanna snúist vindur í sunnan átta til fimmtán metra með skúrum sunnan og vestantil, en það stytti upp og létti víða til norðanlands. Hiti yfirleitt á bilinu 3 til 8 stig. „Á morgun fer svo lægðarmiðjan yfir landið, víða hæg breytileg átt með vætu, en meiri vindur á jöðrum lægðarinnar, norðaustan 8-13 m/s á Vestfjörðum og hvöss suðvestanátt á Suðausturlandi.“ Spákortið fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Víða hæg breytileg átt og stöku skúrir, en hvöss suðvestanátt og rigning á Suðausturlandi og lengst af norðan 8-15 m/s með snjókomu eða slyddu á Vestfjörðum. Hiti 1 til 6 stig en kringum frostmark á norðanverðu landinu. Á miðvikudag: Norðlæg átt 5-13 m/s. Él um landið norðanvert, en þurrt og bjart sunnantil. Frost 0 til 5 stig, en frostlaust syðst. Á fimmtudag: Austlæg eða breytileg átt 3-10 m/s. Skýjað og lítilsháttar él austantil á landinu, en víða léttskýjað annarsstaðar. Frost 2 til 7 stig en frostlaust með suðurströndinni. Vaxandi austanátt og þykknar upp syðst um kvöldið. Á föstudag: Norðaustanátt og snjókoma á köflum um landið austanvert, en annars þurrt að kalla. Frost 0 til 8 stig, hlýjast syðst. Á laugardag: Útlit fyrir að það gangi í hvassa suðaustanátt með hlýnandi veðri og rigningu í flestum landshlutum. Á sunnudag: Líkur á ákveðinni suðvestanátt með skúrum og síðar éljum en úrkomulitlu veðri norðaustantil á landinu.
Veður Mest lesið Trans kona á landsþingi Miðflokksins: Sagt að hún væri skömm við kvenþjóðina Innlent Ian Watkins myrtur af samföngum Erlent Snorri Másson nýr varaformaður Miðflokksins Innlent Sjö milljarða framlög frá aldamótum: Vill endurskoða rekstur Húsdýragarðsins Innlent Oddvitinn ætlar ekki aftur fram Innlent Vinnuslys í bakaríi Innlent Bein útsending: Landsþing Miðflokksins Innlent Fágætar bækur hurfu í tugatali úr bókasöfnum og reyndust allar rússneskar Erlent Hekla Aurora kveður með útsýnisflugi frá Reykjavík Innlent Líkamsárás við skemmtistað Innlent Fleiri fréttir Tuttugu stig á nokkrum stöðum Allt að 18 stig í dag Allt að átján stig fyrir austan á morgun Vindur fer smá saman minnkandi Fer að rigna og bætir í vind Smávægileg útköll vegna óveðursins Urðu fyrir sjóskvettu í beinni Spá mikilli ölduhæð við Faxaflóa í vestan hvassviðri Sjór geti gengið á land í Faxaflóa á morgun Gular viðvaranir vegna vestanstorms Dregur úr vindi og úrkomu þegar líður á daginn Hægur vindur og skúrir eða slydduél Lægð á Grænlandshafi stjórni veðrinu þennan daginn Sleppum ekki alveg við leiðindi Gular viðvaranir og allt að 45 metrar á sekúndu í hviðum Hægviðri og víða bjart Skúrir og áfram milt í veðri Suðlægar áttir og úrkoma í flestum landshlutum Sunnan strekkingur og vætusamt Allhvass vindur sunnan- og vestanlands og rigning Fyrsta haustlægðin mætt til landsins Von á mesta vindinum í marga mánuði Búast við auknu álagi á fráveitu vegna mikillar úrkomu Röð lægða með hefðbundnu haustveðri Lægðagangur næstu daga býður upp á sígilt haustveður Strekkingsvindur og fremur vætusamt næstu daga Vaxandi vindur þegar líður á daginn Grunn lægð yfir landinu í dag en suðlægir vindar á morgun Víða kaldi og allhvasst en lægir smám saman í dag Gular viðvaranir og svalri norðanátt beint til landsins Sjá meira