Nýtt og glæsilegt Grillhús á Laugavegi Grillhúsið 24. nóvember 2021 11:46 „Við hreyfðum hins vegar ekkert við matseðlinum, hann er löngu orðinn klassík sem fólk vill geta gengið að. Hjá okkur fær fólk alla uppáhaldsréttina á einum stað,“ segir Þórður Bacmann sem opnaði nýtt Grillhús á Laugavegi 96. Saga Grillhússins telur tæp 30 ár í miðbæ Reykjavíkur. „
Við teljum okkur hluta af miðbæjarflórunni og gleðjumst mjög yfir að vera komin aftur niður í bæ,“ segir Þórður Bachmann, eigandi Grillhússins en á dögunum var opnað nýtt Grillhús að Laugavegi 96 eftir að dyrunum var lokað á Tryggvagötu fyrir rúmu ári. Saga Grillhússins og miðbæjarins nær aftur um tæpa þrjá áratugi en Grillhúsið var opnað á Tryggvagötunni árið 1994. Nýi veitingastaðurinn er glæsilega innréttaður á þremur pöllum. Guðjón Kristjánsson matreiðslumeistari og rekstrarstjóri, Gunnar Smári Einarsson, matreiðslumeistari og yfirkokkur og Þórður Bachmann eigandi. „Við uppfærðum útlitið mikið og segja má að hér sé komið Grillhús 21 aldarinnar,“ segir Þórður. „Pallarnir gefa staðnum mjög skemmtilegt yfirbragð og skapa kósý stemmningu þar sem hópar geta verið aðeins út af fyrir sig. Þetta smellpassar fyrir smærri hópa sem vilja hittast í hádeginu, halda upp á afmæli eða önnur tilefni, en líka fyrir notalegan tveggja manna dinner. Við höfum sérstaklega gaman af því að taka á móti afmælisbörnum hjá okkur á Grillhúsinu og fá þau alltaf sérstaka athygli hjá okkur. Lýsingin er falleg og þá er glæsilegur bar á staðnum og mikið úrval af kokteilum á frábæru verði. Við hreyfðum hins vegar ekkert við matseðlinum, hann er löngu orðinn klassík sem fólk vill geta gengið að. Hjá okkur fær fólk alla uppáhaldsréttina á einum stað,“ segir Þórður. Á matseðlinum er að finna fjölbreytta rétti, frá hamborgurum, salötum og léttum réttum yfir í nautasteikur, rif og grillspjót. „Fiskurinn er gríðarlega vinsæll hjá okkur og eins spjótin og steikurnar en rifin eru okkar signature réttur. Hádegistilboðin okkar hafa notið gríðarlegra vinsælda gegnum árin og við höldum áfram með þau og einnig Brunchinn. Við erum sérstaklega heppin með aðgengi að Grillhúsinu en í Stjörnuportinu við hliðina á okkur er bílastæðahús,“ segir Þórður. Þá er Grillhúsið komið í blússandi jólaskap og jólaréttirnir komnir á matseðilinn. „Sultuslakur er heitið á jólaborgaranum okkar og þá erum við með smáréttaplatta með jólaþema. Plattinn er fínn fyrir tvo að deila fyrir mat eða fyrir einn sem aðalréttur. Á honum eru ýmsir jólaréttir svo sem hangikjötstartalettur, stökk svínasíða og fleira jólagóðgæti. Svo mælum við með jólaglöggi til að ylja kroppinn eftir göngutúrinn í miðbænum,“ segir Þórður.
Matur Veitingastaðir Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Sjá meira