Stormur austantil á landinu og gular viðvaranir í gildi Atli Ísleifsson skrifar 3. janúar 2022 07:12 Frost verður á bilinu núll til níu stig og dregur úr vindi síðdegis. Vísir/Vilhelm Veðurstofan gerir ráð fyrir norðvestan stormi eða roki austantil á landinu í dag, hvassast á Austfjörðum, og eru gular viðvaranir í gildi á þeim slóðum fram á kvöld.
Annars staðar á landinu verður vindur mun hægari. Víða él, en yfirleitt léttskýjað sunnan heiða. Frost verður á bilinu núll til níu stig og dregur úr vindi síðdegis. „Fremur hægur vindur á morgun, en norðvestan strekkingur austast á landinu fram eftir degi. Lítilsháttar él Norðaustanlands, en á Suður- og Vesturlandi verður þurrt og lengst af bjart veður. Herðir á frosti,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spákortið fyrir klukkan 15.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Norðlæg eða breytileg átt 3-10 m/s, en 10-15 A-til fram eftir degi. Lítilsháttar él NA-lands, en lengst af bjartviðri á S- og V-landi. Frost 1 til 13 stig, kaldast inn til landsins. Á miðvikudag: Suðaustan 10-18 og rigning eða snjókoma með köflum, hiti um og yfir frostmarki. Hægari vindur á NA- og A-landi og lengst af þurrt og svalt í veðri. Suðaustan hvassviðri eða stormur um kvöldið með talsverðri rigningu S-lands. Á fimmtudag: Sunnan og suðaustan 15-25 og rigning eða slydda með köflum. Hiti 1 til 6 stig. Dregur úr vindi seinnipartinn og styttir upp N-lands. Á föstudag: Sunnan og suðvestan 8-15 og rigning eða slydda með köflum á S- og V-landi, hiti 1 til 5 stig. Þurrt um landið NA-vert og hiti í kringum frostmark. Á laugardag: Austlæg eða breytileg átt og rigning eða snjókoma A-lands, en styttir upp um landið V-vert. Hiti um eða yfir frostmarki. Á sunnudag: Útlit fyrir suðlæga átt með rigningu eða slyddu víða um land.
Veður Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fleiri fréttir Víða allhvasst og talsverð rigning Hlýrri suðlægri átt beint til landsins Hlýtt en vætusamt veður í kortunum næstu daga Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Sjá meira