Minnkandi norðvestanátt á landinu Atli Ísleifsson skrifar 4. febrúar 2022 07:27 Frost verður á bilinu eitt til níu stig í dag. Vísir/Vilhelm Minnkandi norðvestanátt verður á landinu í dag, en hvassir vindstrengir suðaustantil fram eftir degi.
Á vef Veðurstofunnar segir að reikna megi með éljum og frosti eitt til níu stig. Þá segir að það létti til sunnan heiða. „Vaxandi austanátt seint í kvöld, 10-18 m/s og snjókoma með köflum í fyrramálið, en mun hægari vindur austanlands. Það lægir síðan allvíða þegar líður á morguninn og styttir smám saman upp sunnanverðu landinu. Það nær þó ekki að lægja á Vestfjörðum og síðdegis bætir einnig í vind annars staðar á norðvesturhluta landsins. Norðan strekkingur á sunnudag með snjókomu eða éljum, en þurrt og bjart sunnanlands. Það dregur síðan úr vindi og ofankomu þegar líður á daginn, en á sunnudagskvöld á ört dýpkandi lægð að koma inn á Grænlandshaf og ef að líkum lætur mun hún valda afar vondu veðri á landinu aðfaranótt mánudags og á mánudag.“ Spákortið fyrir klukkan 15.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Austlæg átt 13-20 m/s og snjókoma með köflum um morguninn, en mun hægari A-lands. Lægir síðan og dregur úr ofankomu um landið S-vert, en áfram allhvöss norðaustanátt NV-til. Frost 1 til 10 stig. Á sunnudag: Norðlæg átt 8-15 og él, en yfirleitt þurrt S-lands. Dregur úr vindi og ofankomu þegar líður á daginn, en snýst í vaxandi austanátt um kvöldið. Hiti breytist lítið. Á mánudag: Suðaustan og austan stormur eða rok og snjókoma eða slydda um morguninn. Snýst síðan í suðvestanátt með éljum og dregur úr vindi á N- og A-landi. Hiti um og undir frostmarki. Á þriðjudag: Suðvestlæg eða breytileg átt og víða él, frost 1 til 8 stig. Á miðvikudag: Norðlæg átt og bjartviðri, en dálítil él N-lands. Kalt í veðri. Á fimmtudag: Útlit fyrir vestan- og norðvestanátt með éljum víða um land.
Veður Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fleiri fréttir Víða allhvasst og talsverð rigning Hlýrri suðlægri átt beint til landsins Hlýtt en vætusamt veður í kortunum næstu daga Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Sjá meira