Leicester í átta liða úrslit þrátt fyrir tap | Íslendingalið FCK úr leik Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 17. mars 2022 19:46 Leicester er á leið í átta liða úrslit Sambandsdeildar Evrópu. Plumb Images/Leicester City FC via Getty Images Enska úrvalsdeildarliðið Leicester City tryggði sér sæti í átta liða úrslitum Sambandsdeildar Evrópu þrátt fyrir 2-1 tap gegn Rennes í kvöld. Leicester vann fyrri leik liðanna 2-0. Þá féll Íslendingalið FCK úr leik eftir 4-0 tap gegn PSV Eindhoven.
Heimamenn í Rennes komust yfir strax á áttundu mínútu gegn Leicester með marki frá Benjamin Bourigeaud, en það reyndist eina mark fyrri hálfleiksins. Wesley Fofana jafnaði metin fyrir Leicester snemma í síðari hálfleik, en varamaðurinn Flavien Tait náði forystunni á ný fyrir Rennes þegar um stundarfjórðungur var til leiksloka. Það reyndist seinasta mark leiksins og niðurstaðan því 2-1 sigur Rennes. Eins og áður segir vann Leicester fyrri leik liðanna 2-0 og þeir eru því á leið í átta liða úrslit en Rennes situr eftir með sárt ennið. LEICESTER TWEET Á sama tíma þurfti Íslendingalið FC Kaupmannahafnar að sætta sig við 4-0 tap gegn PSV Eindhoven. Liðin gerðu 4-4 jafntefli í fyrri leiknum og PSV vann því samanlagt 8-4. Ísak Bergmann Jóhannesson var í byrjunarliði Kaupmannahafnarliðsins og Andri Fannar Baldursson kom inn af varamannabekknum þegar um tíu mínútur voru til leiksloka. Þá er enn á gangi leikur AZ Alkmaar og Bodø/Glimt þar sem Alfons Sampsted leikur með norska liðinu Bodø/Glimt. Alfons og félagar unnu fyrri leikinn 2-1, en AZ Alkmaar hafði betur eftir 90 mínútur í kvöld, 2-1. Því þurfti að grípa til framlengingar sem nú stendur yfir.
Sambandsdeild Evrópu Mest lesið Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Fótbolti O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Enski boltinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Íslenski boltinn Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Fótbolti Albert og félagar trufluðu topplið Inter Fótbolti Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Enski boltinn „Það var erfitt að anda“ Íslenski boltinn Júlía Kristín sló Íslandsmet á HM Sport Verður Kepa aftur skúrkurinn? Enski boltinn Uppgjörið KR - Njarðvík 89-70 | KR vann toppslaginn gegn Njarðvík í Vesturbænum Körfubolti Fleiri fréttir Albert og félagar trufluðu topplið Inter Arteta sér ekkert eftir valinu: „Hver sem er getur gert mistök“ Real Madrid - Atlético Madrid | Nágrannaslagur í höfuðborginni 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Hákon fagnaði dýrmætum sigri í Marseille O'Reilly átti sviðið og City tók titilinn Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann Viktor fékk víti en skelfileg martröð FCK heldur áfram Sandra allt í öllu í sigurleik Frábær sigur Forest en Tudor og Spurs hanga á bláþræði Kolbeinn lagði upp í sigri Börsungar styrkja stöðuna á toppnum Daníel Leó meiddist | Landsleikirnir í hættu? Brobbey braut hjörtu svarthvítra Fleiri vilja sjá City vinna en Arsenal Verður Kepa aftur skúrkurinn? Sveindís skoraði tvö og skaut Englunum á toppinn Báðir þurfa bikar „Það var erfitt að anda“ Enn í nöp við Heimi og kallar hann „tannlausan“ Sjáðu klobbamark Beto og hvernig Welbeck afgreiddi Liverpool Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Löng bið Leeds eftir marki lengist Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Everton andar í hálsmál Chelsea eftir öruggan sigur Sjáðu sjóðheitan Kristian halda áfram að skora „Ótrúlegt að við höfum ekki skorað fleiri mörk“ „Færir liðinu vonandi sjálfstraust“ Hearts vann án Tómasar Fulham blandar sér í Meistaradeildarbaráttuna Sjá meira