Víða rólegheitaveður og sums staðar dálítil væta Atli Ísleifsson skrifar 29. apríl 2022 07:17 Maður að njóta á Austurvelli. Vísir/Vilhelm Veðurstofan spáir rólegheitaveðri víða um land í dag. Skýjað og sums staðar dálítil væta, síst þó suðaustanlands.
Á vef Veðurstofunnar segir að reikna megi með suðvestlægri eða breytilegri átt, þremur til átta metrum á sekúndu og súld eða dálítilli rigningu með köflum á vestanverðu landinu, annars yfirleitt þurrt. Hiti verður á bilinu þrjú til tólf stig. „Á morgun hvessir, einkum norðaustantil. Hiti gæti farið í 16-18 stig hlémegin fjalla, það er á austurhelmningi landsins, en annars víða 6 til 12 stiga hiti. Svo eru spá almennt sammála að á sunnudag kólni allmikið þegar vindur snýst til norðanáttar. Líklegt er að frysti fyrir norðan og úrkoma verði á éljaformi en mildara syðra og yfirleitt þurrt.“ Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Suðvestan og vestan 5-13 m/s, en 10-18 í vindstrengjum norðvestantil á landinu. Skýjað með köflum um landið vestanvert og sums staðar dálítil súld, en yfirleitt þurrt og bjart annars staðar. Hiti 6 til 14 stig. Á sunnudag: Snýst í norðan og norðaustan 5-13 og kólnar með dálitlum éljum norðanlands, vægt frost þar síðdegis. Þurrt að kalla sunnan heiða með hita 5 til 12 stig. Á mánudag: Austan og norðaustan 5-13 m/s. Dálitlar skúrir eða él á Suður- og Vesturlandi með hita 0 til 6 stig, annars þurrt að kalla og vægt frost. Á þriðjudag: Suðaustlæg eða breytileg átt og rigning eða slydda sunnan- og vestantil, en annars þurrt. Hiti 1 til 7 stig að deginum. Á miðvikudag: Suðlæg átt og rigning með köflum, en þurrt norðaustan og austanlands. Hiti 5 til 11 stig. Á fimmtudag: Útlit fyrir fremur milda suðvestanátt með vætu víða um land.
Veður Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Kaldi og skúrir á Suðvesturlandi Víða allhvasst og talsverð rigning Hlýrri suðlægri átt beint til landsins Hlýtt en vætusamt veður í kortunum næstu daga Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Sjá meira