Tommi Steindórs stýrir Streetballmóti á Klambratúni X977 2. júní 2022 08:48 „Það má auðvitað rífast en ef allt fer í vitleysu mæti ég,“ segir Tommi Steindórs en hann stýrir grjóthörðu götuboltamóti X977 á Klambratúni þann 11. júní. Vilhelm X977 fagnar sumrinu með alvöru götuboltastemningu á Klambratúni þann 11. júní.
Spilað verður upp á peninga og er skráning í fullum gangi inni á tix.is. Mótsstjórn verður í öruggum höndum Tomma Steindórs, dagskrárgerðarmanns á X977 og annars umsjónarmanna þáttarins Boltinn lýgur ekki. Tommi lofar trylltri stemmingu. „Það er ekki ein dauð stund í körfuboltaleik og sérstaklega ekki í götubolta þar sem spilað er upp á tíma. Ég sé til þess að þarna verður eintóm gleði, búinn að panta góða veðrið og það verður tónlist og Subway og allt fljótandi í Red Bull. Þetta verður Íslandsmeistaramótið í götubolta,“ segir Tommi. Skipulagið er einfalt, fjórir leikmenn í liði og þrír inná í einu. Spilað verður í riðlum og tvö efstu liðin fara áfram í æsispennandi útsláttarkeppni. „Það verða engir dómarar, sóknin dæmir en ég verð með augun á öllum og alráður, ef upp koma vafamál sker ég úr um þau. Það má auðvitað rífast en ef allt fer í vitleysu mæti ég.“ Það er mikill körfuboltahugur í þjóðinni, segir TommiVilhelm Ekkert aldurstakmark er á þátttöku og allir geta tekið þátt, eða hvað? „Ekki úrvalsdeildarleikmenn og ég þekki þá alla þannig að það þýðir ekkert að svindla sér. Þó horfi ég mögulega framhjá bekkjarsetumönnum sem fá lítið að spila. En annars vil ég sjá sem flesta taka þátt, gamla og unga, konur og kalla, blönduð lið og allskonar. Einu kröfurnar sem ég set er að liðið mæti í samstæðum búningum, engum ósamstæðum lörfum. Ég veiti verðlaun fyrir ýmislegt meðal annars flottustu búningana, flottasta liðsnafnið, flottustu tilþrifin, háttvísiverðlaun og það er til mikils að vinna. Skráningin fer mjög vel af stað og því um að gera að tryggja sér pláss sem fyrst,“ segir Tommi og hvetur fólk einnig til að fjölmenna í áhorfendabrekkuna á Klambratúni, mótið verði frábær skemmtun. „Karfan er reyndar að taka fram úr handbolta sem næst vinsæalsta íþrótt landsins en síðan þátturinn Körfuboltakvöld hóf göngu sína á Stöð 2 árið 2015 hefur verið stöðugur uppgangur í körfunni. Stöð 2 Sport sýnir einnig beint frá úrslitum NBA sem verða einmitt í hámarki þegar Streetballmótið fer fram Það er einfaldlega mikill körfuboltahugur í þjóðinni.“
X977 Körfubolti Mest lesið Klæddi sig upp sem hjákona eiginmannsins Tíska og hönnun Fékk hvorki að setja eigið nafn né dulnefni á þættina sína Lífið Fyrrverandi ráðherra Dana: „Þið voruð aldrei nýlenda“ Menning Floppin í haust og sjónvarpslaus sjónvarpsverðlaun Menning Svona er kynlífsþjónusta á Íslandi Lífið Stjörnulífið: „Ef fólk hættir að gagnrýna mig svelt ég“ Lífið „Ég sótti ekki einu sinni um háskóla á Íslandi“ Lífið Leikstýrir kærastanum í stærsta harmleik sögunnar Lífið Hefur farið í gegnum sambandsslit, gjaldþrot og fjárkúgunarmál frammi fyrir þjóðinni Lífið Dagur Sig genginn í það heilaga Lífið Fleiri fréttir Vetrartískan er mætt í Boozt með kósýheit Nýir réttir Serrano aðgengilegir í LifeTrack appinu Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu „Við eigum meira blóð en blóðbankinn!“ Flytja alla Springsteen slagarana í Hörpu Frábær árangur í meðferðarstarfi Kalklitir og Slippfélagið mála framtíðina saman Hárolía, vinur eða óvinur hársins? Dineout gjafabréf er jólagjöfin í ár Hjálpa öðrum að eignast lítil kraftaverk Þarf alltaf að vera vín? Trúði varla eigin augum þegar hún sá fyrir og eftir myndirnar Úrval Útsýn hefur svarað kalli um björgunarfargjöld Þessi litla breyting breytti í raun öllu! Eldhúspartý KVIK er á laugardaginn Hug-A-Lums þyngdarbangsar sem allir elska The Ultimate Eagles halda tónleika í Hörpu Sjá meira