Snjór og varasöm hálka á Öxnadalsheiði í nótt Atli Ísleifsson skrifar 3. júní 2022 07:30 Hitinn á landinu verður á bilinu sjö til sextán stig. Vísir/Vilhelm Nú er regnsvæði á leið yfir landið frá vestri til austurs og því rignir um tíma í dag í flestum landshlutum. Í kvöld kemur kalt loft úr vestri og fer hratt yfir. Á Öxnadalsheiði og eflaust víðar á fjallvegum norðanlands gerir seint í kvöld og nótt snjó eða krapa með varasamri hálku.
Á vef Veðurstofunnar segir að áttin sé suðvestlæg, ýmist gola eða kaldi og að hitinn verði á bilinu sjö til sextán stig og hlýjast á Austfjörðum. #Veður: Í kvöld kemur kalt loft úr vestri og fer hratt yfir. Á Öxnadalsheiði og eflaust víðar á fjallvegum norðanlands gerir seint í kvöld og nótt snjó eða krapa með varasamri hálku. #færðin pic.twitter.com/yaAVUKkl46— Vegagerðin | Iceland Roads (@Vegagerdin) June 3, 2022 „Í kvöld tekur við eilítið ákveðnari vestanátt, skúrir á víð og dreif og kólnar í veðri. Á morgun lægir vind á landinu og léttir til víðast hvar og ættu því flestir landsmenn að sjá til sólar.“ Spákortið fyrir klukkan 10 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Vestan og norðvestan 3-8 m/s og léttir víða til, en 8-13 og lítilsháttar væta á Norður- og Norðausturlandi fyrir hádegi. Hiti frá 6 stigum við norðurströndina, upp í 16 stig á Suðausturlandi. Á sunnudag (hvítasunnudagur): Suðvestan og vestan 8-13 og rigning eða súld, hiti 7 til 12 stig. Þurrt austanlands með hita að 16 stigum. Á mánudag (annar í hvítasunnu): Norðlæg eða breytileg átt 3-10. Yfirleitt þurrt á landinu og bjart með köflum. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast sunnanlands. Suðaustan 8-13 og dálítil rigning á Suður- og Vesturlandi um kvöldið. Á þriðjudag: Suðaustan og austan 5-10, en 10-15 með suðurströndinni. Bjartviðri norðan- og vestanlands með hita að 18 stigum, en dálítil rigning suðaustantil á landinu og svalara. Á miðvikudag og fimmtudag: Austlæg átt og rigning með köflum sunnanlands, en yfirleitt þurrt fyrir norðan. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Kaldi og skúrir á Suðvesturlandi Víða allhvasst og talsverð rigning Hlýrri suðlægri átt beint til landsins Hlýtt en vætusamt veður í kortunum næstu daga Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Sjá meira