Guðrún og stöllur enn á toppnum eftir stórsigur Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 12. júní 2022 14:53 Guðrún Arnardóttir og stöllur hennar eru ósigraðar á toppi deildarinnar. Twitter @FCRosengard Fimm leikir fóru fram í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag og voru Íslendingar í eldlínunni í fjórum þeirra. Guðrún Arnardóttir og stöllur hennar í Rosengård unnu 5-2 stórsigur gegn Umeå og eru enn taplausar á toppi deildarinnar.
Heimakonur í Rosengård tóku forystuna strax á tíundu mínútu leiksins áður en Olivia Schough sá til þess að staðan var 2-0 þegar flautað var til hálfleiks. Heimakonur bættu þriðja og fjórða markinu við snemma í síðari hálfleik, og gerðu svo algjörlega út um leikinn með marki á 84. mínútu. Gestirnir náðu þó að klóra í bakkann á lokamínútum leiksins og minnkuðu muninn í 5-2 áður en lokaflautið gall. Guðrún lék allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá Rosengård, en liðið trónir enn á toppi deildarinnar með 36 stig eftir 14 leiki. Liðið hefur ekki enn tapað leik og er með fimm stiga forskot á toppnum. Þá vann Kristianstad góðan 1-2 útisigur gegn Brommapokjarna þar sem Amanda Andradóttir og Emelía Óskarsdóttir komu inn af varamannabekknum. Elísabet Gunnarsdóttir þjálfar liðið sem situr nú í þriðja sæti. Hallbera Guðný Gísladóttir og stöllur hennar í Kalmar þurftu hins vegar að sætta sig við 4-0 tap er liðið heimsótti Hammarby og þá sátu Agla María Albertsdóttir og Diljá Ýr Zomers á varamannabekk Häcken er liðið tapaði 2-3 gegn Vittsjö.
Sænski boltinn Mest lesið Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Thelma með stoðsendingu og er Svíþjóðarmeistari Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Ronaldo var skilinn eftir heima Fer frá Stjörnunni í FH Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Fimmta árið í röð eru Noregsmeistararnir með eina íslenska í liðinu Leikmaður Freys varð fyrir kynþáttaníði frá mótherja Sjá meira