N1 endurnýjar stuðninginn við KSÍ N1 21. júní 2022 11:06 Hinrik Örn Bjarnason, framkvæmdastjóri N1 og Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ skrifa undir samstarfssamninginn á Laugardalsvelli í viðurvist Eggerts Þórs Kristóferssonar, forstjóra Festi og Þyríar Drafnar Konráðsdóttur, forstöðumanns markaðsmála hjá N1. Einnig voru landsliðskonurnar Glódís Perla Viggósdóttir og Sandra Sigurðardóttir viðstaddar undirskriftina en þær halda brátt á EM kvenna í fótbolta á Englandi. N1 og KSÍ hafa endurnýjað samstarf sitt til næstu tveggja ára en samningur þess efnis var undirritaður á Laugardalsvelli á dögunum. Fyrsti samstarfssamningurinn þeirra á milli var undirritaður árið 2014 og felur samningurinn í sér að N1 verði áfram einn helsti bakhjarl KSÍ í bæði kvenna- og karlaknattspyrnu, auk þess að styðja við unga knattspyrnuiðkendur um allt land. „
N1 hefur til fjölda ára verið helsti stuðningsaðili KSÍ og því ríkir mikil ánægja með endurnýjun samstarfsins. Stuðningur félagsins hefur haft virkilega jákvæð og kraftmikil áhrif á íslenska knattspyrnu, bæði framgang karla- og kvennalandsliða á alþjóðlegum vettvangi og uppbyggingarstarf innan ungliðastarfs KSÍ. Það eru spennandi tímar framundan í íslenskri knattspyrnu og hlökkum við til að styðja enn betur við íþróttina með dyggri aðstoð frá N1,“ segir Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ Hinrik Örn Bjarnason, framkvæmdastjóri N1 fagnar einnig áframhaldandi samstarfi. „Það er afar ánægjulegt að fá tækifæri til að styðja við vegferð karla- og kvennalandsliðs okkar í knattspyrnu sem og uppgang ungra leikmanna, enda hefur N1 lagt sérstaka áherslu á að stuðla að vexti grasrótarinnar í íslenskri knattspyrnu. Stelpurnar okkar halda brátt á EM 2022 í fótbolta og er einnig sérstaklega gaman að fá að vera hluti af því ævintýri. Við hjá N1 óskum þessum flotta landsliðshópi góðs gengis á Englandi,“ segir Hinrik Örn. Sérstaða samstarfsins felst einnig í stuðningi N1 við Hæfileikamótun KSÍ sem er liður í uppbyggingu knattspyrnu á landsbyggðinni og höfuðborgarsvæðinu. Verkefninu er ætlað að auka áhuga á knattspyrnuiðkun meðal yngri iðkenda af öllum kynjum með það að markmiði að knattspyrnulið um allt land fái heimsóknir frá þjálfurum KSÍ. Þar fá þeir tækifæri til að fylgjast með efnilegum leikmönnum á aldrinum 13 til 14 ára, auk þess sem leikmennirnir fá leiðsögn frá þjálfurum í fremstu röð.
Fótbolti KSÍ Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Sjá meira