Einangrun og einmanaleiki sem fangar fegurðina Steinar Fjeldsted skrifar 1. september 2022 14:30 Ljósmynd: Anna Maggý. Í dag gefur Árný Margrét út lagið „world is between us" af væntanlegri frumraun í fullri lengd, plötunni they only talk about the weather. Laginu fylgir myndband sem Erlendur Sveinsson leikstýrir og er myndbandið unnið í samstarfi við Icelandair. Myndbandið er tekið upp á vestfjörðum, á Ísafirði og nágrenni, og sýnir íslenska vetrarstemningu eins og hún getur verið - bæði falleg og nöturleg. Um myndbandið segir Árný Margrét: „Við tókum upp myndbandið í heimabæ mínum að vetrarlagi. Við fengum allar tegundir af veðri, sem við reyndar bjuggust við og vildum sýna. Myndbandið sýnir einangrun og einmanaleika en nær um leið að fanga fegurðina í því. Það var frábært að vinna með Erlendi að þessu, teymið var fyrsta flokks og við skemmtum okkur vel. Ég vona að fólk líki eins vel við myndbandið og okkur." Í febrúar sl. gaf Árný Margrét út EP-plötuna Intertwined og í júlí kom út lagið Cold Aired Breeze sem var fyrsta smáskífan af væntanlegri plötu. Undanfarna mánuði hefur Árný Margrét síðan komið fram á tónleikum í Bandaríkjunum og Evrópu. Í júlí kom hún m.a. fram á hinni goðsagnakenndu Newport Folk Festival og hitaði svo upp fyrir Blake Mills ásamt Pino Palladino á fernum tónleikum í Chicago, New York og Washington DC. Í nóvember mun Árný Margrét koma fram á Iceland Airwaves. Á örstuttum tíma hefur hins vestfirska Árný Margrét öðlast talsverða reynslu í hinum alþjóðlega tónlistar heimi. Hún hefur komið sér upp öflugu teymi af samstarfsaðilum, m.a. breska útgáfufyrirtækinu One Little Independent og bókunar fyrirtækjunum ATC Live í Evrópu og High Road Touring í Norður-Ameríku. Hún starfar náið með upptökustjóranum og tónlistarmanninum Guðmundi Kristni Jónssyni sem hefur átt stóran þátt í velgengni Ásgeirs (Trausta) en bæði EP-plata og hin væntanlega plata Árnýjar Margrétar eru teknar upp í hljóðveri Guðmundar Kristins, Hljóðrita í Hafnarfirði. Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband með því að senda póst á albumm@albumm.is. Tónlist Mest lesið Sjö dýrustu eignirnar sem seldust árið 2025 Lífið „Ungir drengir eru búnir að láta segja sér að þeir séu eitraðir“ Lífið „Ég er að heiðra litla Aron“ Tónlist Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Lífið Karlmennskan rís úr öskunni Lífið Tæplega 28 þúsund í mat á mánuði: „Hvar voru þið að svindla?“ Lífið Alan Carr á Íslandi Lífið Fannar og Vala keyptu fyrir 170 milljónir í Kjalarlandi Lífið Vill 700 milljónir fyrir höllina Lífið Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Lífið
Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband með því að senda póst á albumm@albumm.is.
Tónlist Mest lesið Sjö dýrustu eignirnar sem seldust árið 2025 Lífið „Ungir drengir eru búnir að láta segja sér að þeir séu eitraðir“ Lífið „Ég er að heiðra litla Aron“ Tónlist Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Lífið Karlmennskan rís úr öskunni Lífið Tæplega 28 þúsund í mat á mánuði: „Hvar voru þið að svindla?“ Lífið Alan Carr á Íslandi Lífið Fannar og Vala keyptu fyrir 170 milljónir í Kjalarlandi Lífið Vill 700 milljónir fyrir höllina Lífið Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Lífið