Suðlægar áttir og vætusamt í dag og á morgun Atli Ísleifsson skrifar 19. september 2022 06:54 Spár gera ráð fyrir áframhaldandi lægðagangi í kringum landið eftir miðja viku, en engin lægðanna virðist sérlega haustleg. Vísir/Vilhelm Suðlægar áttir verða ríkjandi með nokkuð vætusömu veðri bæði í dag og á morgun, einkum sunnan og vestantil. Þó má einnig gera ráð fyrir rigningu norðaustantil seint í dag og fram eftir kvöldi.
Víða er reiknað með þrettán til átján metrum á sekúndu við suðvestur- og vesturströndina í fyrstu, en annars suðlæg átt, fimm til þrettán metrar á sekúndu. Má reikna með að lægi heldur á morgun. Á vef Veðurstofunnar segir að þá verði hlýtt miðað árstíma og spár geri ráð fyrir allt að átján stiga hita norðaustantil í dag og á morgun. Spár gera ráð fyrir áframhaldandi lægðagangi í kringum landið eftir miðja viku, en engin lægðanna virðist sérlega haustleg. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á þriðjudag: Sunnan 3-10 m/s, hvassast sunnantil og dálítil væta, en léttir til norðaustan og austanlands. Bætir í úrkomu sunnan- og vestantil um kvöldið og þykknar upp austanlands. Hiti 10 til 16 stig, hlýjast á norðaustanverðu landinu. Á miðvikudag: Suðlæg eða breytileg átt 3-8 og sums staðar skúrir sunnantil en rigning austantil fram undir hádegi. Yfirleitt léttskýjað um landið norðanvert. Hiti 8 til 13 stig. Á fimmtudag: Vestlæg átt, 3-8 en norðlægari með norðurströndinni. Dálítil rigning, en þurrt og bjart suðaustanlands. Hiti 5 til 12 stig, mildast á Suðaustur- og Austurlandi. Á föstudag (haustjafndægur): Norðvestan- og vestanátt, 8-13 m/s. Dálitlar skúrir nyrst í fyrstu annars víða bjartviðri. Hiti 6 til 12 stig, mildast suðaustanlands. Á laugardag: Útlit fyrir vaxandi suðvestanátt með talsverðri rigningu og hlýnandi veðri. Á sunnudag: Líkur á vestlægari átt og bjartviðri syðra en snýst í norðanátt norðantil og þykknar upp. Kólnar hratt um kvöldið.
Veður Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Kaldi og skúrir á Suðvesturlandi Víða allhvasst og talsverð rigning Hlýrri suðlægri átt beint til landsins Hlýtt en vætusamt veður í kortunum næstu daga Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Sjá meira